Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:57 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á Laugardaginn gengu Íslendingar til Alþingiskosninga. Hér í Norðvesturkjördæmi bauð Framsóknarflokkurinn fram framboðslista með kraftmiklu fólki víðsvegar úr kjördæminu. Eins og öllum er ljóst þá hefur flokkurinn gengið í gegnum talsverða erfiðleika. En á undanförnum vikum hefur komið fram mikill kraftur og tekist hefur að virkja grasrót flokksins víðsvegar um landið. Á ferðum okkar um kjördæmið fundum við fyrir mikilli jákvæðni og hún endurspeglaðist í úrslitum kosninganna. Þegar búið var að telja öll atkvæði þá fékk Framsóknarflokkurinn 18,42% atkvæða og er næststærsti flokkurinn í kjördæminu.
Undirrituð voru kjörin á Alþingi fyrir okkar kjördæmi og við viljum með þessari stuttu grein þakka ykkur fyrir þann stuðning sem þið sýnduð bæði okkur og Framsóknarflokknum. Þessu fylgir mikil ábyrgð og við munum leggja okkur fram að standa undir henni. Norðvesturkjördæmi er stórt og víðfeðmt. Það að ná tveimur þingmönnum auðveldar okkur að ná utan um kjördæmið.
Við viljum að lokum hvetja íbúa kjördæmisins til að vera í sambandi við okkur um mál sem brenna á fólki. Við erum hér fyrir ykkar tilstilli og mikilvægt að samstarf okkar verði gott á kjörtímabilinu.
Með góðri kveðju og þökk fyrir stuðninginn.
Ásmundur Einar Daðason og Halla Signý Kristjánsdóttir
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |