Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:12 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:12 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:12 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:12 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:12 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:12 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kærleikurinn spyr ekki um eigin hag og er ekki á eigin forsendum. Hann segir ekki, þegar mér hentar, þegar ég vil eða nenni og þá þegar ég fæ sem mest út úr honum á móti.
Nei, kærleikurinn hlustar og sér með hjartanu. Hann opnar hjarta sitt fyrir neyð náungans, án þess að spyrja um rök eða ástæður. Um leið og hann er brotthvarf úr sjálfinu leiðir hann til sjálfsmeðvitundar. Hann nær út fyrir öll hagsmunasamtök og allar pólitískar samfylkingar.
Kærleikurinn er flæðandi en honum fylgir sjálfsagi. Hann er miskunnsamur. Hann virðir mörk og hann er ekki sjálfhverfur. Hann er umhyggja frá innstu hjartans rótum. Hann uppörvar og hvetur. Því hann á uppsprettu í hinni tæru lind lífsins. Hann breytir refsingu í fyrirgefningu. Er fórnfús og spyr ekki um endurgjald.
Kærleikurinn kemur í veg fyrir ósætti. Hann flytur frið og leitar sátta. Hann stuðlar að gleði og veitir fögnuð. Gleði og fögnuð sem byggð eru á djúpri alvöru sem leiðir til varanlegrar hamingju. Hamingju sem umbreytir hjörtum fólks svo það leitast við að snúa sér frá ranglæti og óréttvísi og inn í ljós sannleikans.
Kærleikurinn stuðlar að skilningi, er nærgætinn, alúðlegur og hlýr. Hann er í senn gjafmildur og þakklátur. Hann veitir hjörtunum frið. Eilífan frið sem er æðri mannlegum skilningi.
Kærleikurinn fer ekki í manngreinarálit og tekur sér ekki frí. Hann er ekki aðeins falleg orð heldur lætur hann verkin tala. Hann umvefur og faðmar. Í honum er fólgin lausn, sigur og ólýsanlegur lækningamáttur.
Svo veldur hver á heldur.
Með einlægri kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |