Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 08:43 0 0°C
Laxárdalsh. 08:43 0 0°C
Vatnsskarð 08:43 0 0°C
Þverárfjall 08:43 0 0°C
Kjalarnes 08:43 0 0°C
Hafnarfjall 08:43 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 28. maí 2021 - kl. 09:24
Syngjum og biðjum, hlæjum og grátum saman
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Segjum börnunum okkar og barnabörnum og börnum þessa heims frá bæninni. Höfum fyrir þeim að fela okkur Guði á vald. Honum sem skapaði okkur og elskar okkur mest og hét því að sleppa aldrei af okkur takinu og yfirgefa okkur aldrei, sama hvað. Því bæn í Jesú nafni er raunverulega friðgefandi, vonarstyrkjandi og kærleiksnærandi.

Í bæninni gerumst við auðmjúk og einlæg. Við gerumst heiðarleg við okkur sjálf og við Guð, alla vega á meðan á henni stendur. Bænin stillir kvíða og losar um streitu. Hún skerpir einbeitinguna og fær okkur til samkenndar, til að setja okkur í spor annarra. Bænin veitir huganum ró og færir frið í hjarta.

Með bæninni tökum við að átta okkur betur á okkur sjálfum, raunverulegum þörfum okkar og vilja, samferðafólki okkar, umhverfinu og Guði. Við tökum að skynja betur hver við erum og hvert við þráum að stefna og því sem skiptir okkur mestu máli í lífinu.

Bænin er góð forvörn. Hún minnir okkur á í daglegu lífi hvers við báðum um morguninn eða í hádeginu, við kvöldverðarborðið eða fyrir svefninn á kvöldin. Bænin minnir okkur einnig á það að við megum og getum beðið til Guðs hvar og hvenær sem er og lagt allt sem á okkur hvílir á Guðs herðar samkvæmt hans boði og vilja í trausti þess að hann muni leiða okkur frá öllu illu, vera okkur vernd og skjól þegar það tekur í og á gefur á.

Munum samt að bænin virkar ekki eins og sjálfsali á efnisleg gæði heldur að fela sig höfundi og fullkomnara lífsins í vanmætti. Honum sem sér í okkur eilífðar verðmæti sem hann vill ekki að fari til spillis. Með bæninni tökum við nefnilega að sjá og upplifa fegurð lífsins, jafnvel þrátt fyrir allt. Því bænin fær okkur til að opna augun. Hún virkjar þakklætið. Hún eflir sjálfstraust og virðingu fyrir náunganum.

Takk Guð

Og svo er það náttúrulega söngurinn og tónlistin sem mýkir hjartað, styrkir andann, gleður geðið og nærir sálina. Söngurinn og bænin eru nefnilega gömul en góð sívirk meðul okkur af Guði gefin ásamt brosinu bjarta, frelsandi fyrirgefningu, hlátrinum og tárunum.

Takk Guð fyrir að elska okkur eins og við erum. Takk fyrir lausnina sem bæninni fylgir og takk fyrir þína takmarkalausu fyrirgefningu. Takk fyrir söng fugla og manna, alla tjáningu tónlistarinnar og ritlistarinnar, já og myndlistarinnar.

Takk fyrir táknmál táranna sem glóa svo fallega í minningunni. Tárin eru svo dýrðleg gjöf sem minna á samstöðu þína og miskunn á erfiðum tímum sem og á gleði stundum. Og takk fyrir öll hin ólíku bros mannanna og hláturinn sem losar um streitu og spennu og eflir samstöðu og vináttu, gerir allt svo miklu betra svo okkur tekur að líða betur og líka í gegnum trega tárin sem hlátrinum getur svo auðveldlega fylgt.

Brosum saman inn í sumarið því við eigum lífið fram undan.

Með samstöðu- kærleiks- og friðarkveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið