Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:23 0 0°C
Laxárdalsh. 03:23 0 0°C
Vatnsskarð 03:23 0 0°C
Þverárfjall 03:23 0 0°C
Kjalarnes 03:23 0 0°C
Hafnarfjall 03:23 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 31. júlí 2021 - kl. 09:17
Bæn fyrir fólki á ferðalagi
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Umhyggjusami, umvefjandi, elskandi Guð, frelsari og eilífi lífgjafi!

Blessaðu okkur öll sem ferðumst um landið okkar fallega í sumar. Gef að við fáum notið landsins og náttúrunnar og hins óviðjafnanlega landslags, fegurðar sköpunar þinnar. Uppi á fjöllum, niður í dölum, í fjörðum og hvar sem við komum eða förum um.

Forðaðu okkur sem ferðumst um landið okkar frá öllu illu, hvers kyns  hættum, slysum og tjóni. Hjálpaðu okkur að reynast góðir gestgjafar. Og minntu okkur á að sýna aðgát, kurteisi og ábyrgð, tillitssemi og þolinmæði í umferðinni og virðingu í samskiptum öllum við hvert annað, landið, náttúruna og náttúruöflin og veita þeim aðstoð sem á vegi okkar verða og stuðning sem á því þurfa að halda. Leið okkur svo heil heim með dýrmætar minningar í farteskinu sem við getum yljað okkur við.

Gefðu að við fáum að upplifa eitthvað nýtt og spennandi og getum um leið notið áningar og friðar með góðum ferðafélögum og í þakklæti til þín sem skapar og græðir, nærir og gefur líf. Í þakklæti til þín sem vilt að við njótum þess besta sem þú hefur skapað og gefið og lífið hefur upp á að bjóða. 

Hjálpaðu okkur að njóta eðlilegra samvista í faðmi fjölskyldu, vina eða kunningja og gef við eignumst jafnvel nýja kunningja og vini. Hjálpaðu okkur að hafa augun opin fyrir eigin velferð og náungans og koma þeim til hjálpar sem hjálpar er þurfi. 

Þess bið ég þig, náðugi og miskunnsami Guð. Þig sem ert höfundur og fullkomnari lífsins og einn ert fær um að viðhalda því um eilífð.

Í Jesú nafni. Amen.

Með samstöðu- friðar- og kærleikskveðju.

- Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið