Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga 80 ára  •   Kosningar um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar  •   Bestu þakkir til Björns Þórs og Söndru á B&S   •   Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakjörs 1. júní 2024  •   Tvöhundruð þúsund söfnuðust á fiskhlaðborði  •   Opnun skotíþróttasvæðisins  •   Eldri borgarar stóðu sig vel á boccia-móti  •   Reiðufé fannst í Húnabyggð  •  
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:46 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Fréttir | 14. maí 2024 - kl. 14:51
Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga er 80 ára í dag, 14. maí. Félagið var stofnað lýðveldisárið 1944 á Blönduósi og hefur vaxið og dafnað með héraðsbúum í skjóli stækkandi skóga. Í tilefni dagsins gróðursettu Pétur Bergþór Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar og Páll Ingþór Kristinsson, formaður félagsins fyrstu greniplönturnar sem eru gjöf frá skógræktarfélaginu til íbúa.
|
Fréttir | 14. maí 2024 - kl. 14:18
Á heimasíðum Húnabyggðar og Skagabyggðar má finna tilkynningu um kosningar um sameiningu sveitarfélaganna. Boðað er til íbúakosninga á grundvelli 119. gr. sveitarstjórnarlaga um sameiningu sveitarfélaga en sveitarstjórnir beggja sveitarfélaga hafa fjallað um álit samstarfsnefndar á grundvelli greinargerðar sem nefndin vann um sameiningu sveitarfélaganna.
|
Tilkynningar | 14. maí 2024 - kl. 10:56
Frá gullborgurum Húnabyggðar
Við gullborgarar viljum þakka þeim Birni Þór og Söndru eigendum B&S hjartanlega fyrir boð í fiskihlaðborð á veitingastað þeirra. þann 9. maí sl. Gullborgurum Húnabyggðar var öllum boðið í mat og gátum þeir um leið styrkt uppbyggingu salernis fyrir fatlaða í Blönduóskirkju með frjálsum framlögum. Virkilega verðugt verkefni. Þarna var fjölmenni að vanda og ekki í fyrsta skipti sem þessi hjón gleðja eldriborgarana.
|
Tilkynningar | 14. maí 2024 - kl. 10:54
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á kjörstöðum innan umdæmisins sem hér segir: Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 - 15:00. Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 - 15:00.
Hvammstanga, ráðhúsi Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga, mán - fim kl. 09:00 - 16:00 og fös kl. 09:00 - 12:00. Skagaströnd, stjórnsýsluhúsi að Túnbraut 1-3, Skagaströnd, virka daga kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00.
|
Fréttir | 13. maí 2024 - kl. 14:44
Rúmar 200 þúsund krónur söfnuðust á fiskhlaðborði B&S Restaurant sem haldið var 9. maí síðastliðinn fyrir eldri borgara í Húnabyggð, 70 ára og eldri. Björn Þór og Sandra, eigendur B&S, buðu eldri borgurum á hlaðborðið og á staðnum var hægt að leggja fram frjáls framlög sem runnu til viðhalds Blönduóskirkju og uppsetningu á hreinlætisaðstöðu. Eldri borgarar fjölmenntu á hlaðborðið og nutu veitinga Björn Þórs og Söndru auk þess sem að Skarphéðinn og Benni stýrðu fjöldasöng.
|
Fréttir | 13. maí 2024 - kl. 12:58
Frá Skotfélaginu Markviss
Þá er alveg að koma að því! Sumaropnun á skotíþróttasvæði Markviss verður á miðvikudagskvöldum frá 19.30-21.00. Fyrsta opnunarkvöld verður 22 maí. Á haglavöllum verður Sporting og Skeet í fyrirrúmi,og svo verður riffilbrautin að sjálfsögðu opin. Allir velkomnir,hvort sem er til að skjóta úr gamla Brno eða bara kíkja í kaffi og spjall.
|
Fréttir | 13. maí 2024 - kl. 12:04
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra sendi þrjár þriggja manna sveitir, undir styrkri stjórn Flemmings Jessen á Vesturlandsmótið í boccia sem haldið var í Ỏlafsvík á föstudaginn. Alls tóku 20 sveitir þátt í mótinu og komu þær frá Akranesi, Mosfellsbæ, Borgarnesi, Stykkishólmi, Grundarfirði, Snæfellsbæ og Hvammstanga. Á facebooksíðu Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra kemur fram að í fyrsta skipti náði lið félagsins að vinna sinn riðil og komast í úrslit. Liðið endað í 4. til 6. sæti.
|
Fréttir | 13. maí 2024 - kl. 09:19
Lögreglan á Norðurlandi vestra segir frá því á facebooksíðu sinni að reiðifé hafi fundist í Húnabyggð fyrir skemmstu. Ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar um hið fundna reiðufé en í samræmi við rótgróna réttarheimild um meðferð á fundnu fé í kaupstöðum geti eigandinn vitja fjárins á lögregluvarðstofunni á Blönduósi. Réttarheimildin sem vísað er til er opið bréf frá kansellíinu og er frá árinu 1811.
|
Fréttir | 13. maí 2024 - kl. 09:10
Fulltrúar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi heimsóttu systursamtök sín á Norðurlandi vestra í síðustu viku. Fyrst var farið í Skagafjörðinn þar sem Byggðastofnun var heimsótt og síðan fékk hópurinn kynning á tveimur nýsköpunarverkefnum á Norðurlandi vestra. Daginn eftir var farið yfir í Húnavatnssýslur og þar fékk hópurinn kynningu á uppbyggingunni í gamla bænum. Á Hvammstanga fór fram vinnustofu þar sem rædd voru verkefni landshlutasamtakanna tveggja og gerð nýrrar sóknaráætlunar.
|
Fréttir | 12. maí 2024 - kl. 14:13
Kormákur Hvöt tók á móti Reyni Sandgerði í fyrsta „heimaleiknum“ í 2. deildinni í knattspyrnu karla í gær. Leikið var á Dalvík, en upphaflega stóð til að leika á Sauðárkróki þar sem grasvellir í Húnaþingi eru ekki klárir eftir veturinn. Gervigrasið á Sauðárkróki fór illa í vatnsveðri á dögunum og því var ákveðið að færa leikinn til Dalvíkur. Fyrri hálfleikur var fjörugur og á 20. mínútu skoruðu gestirnir fyrsta mark leiksins.
|
Tilkynningar | 11. maí 2024 - kl. 23:57
Opinn fundur með Höllu Tómasdóttur, frambjóðanda til forseta Íslands, verður í Glaðheimum á Blönduósi þann 12. maí og hefst kl. 17:30.
|
Fréttir | 10. maí 2024 - kl. 22:37
Áhugakonur um golfíþróttina ætla að hittast í Glaðheimum fimmtudaginn 16. Maí kl. 17:00. Allar áhugasamar eru velkomnar og takið vinkonur ykkar með.
|
Fréttir | 10. maí 2024 - kl. 22:22
Blönduósingurnn Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands. Eysteinn Pétur hefur verið framkvæmdastjóri aðalstjórnar Breiðabliks og áður knattspyrnudeildar félagsins í rúm 10 ár. Áður en Eysteinn fór til Breiðabliks starfaði hann sem framkvæmdastjóri og þjálfari knattspyrnudeildar Hvatar á Blönduósi.
|
Fréttir | 10. maí 2024 - kl. 11:07
Sveitarfélagið Húnaþing vestra skilaði 77,6 milljón króna rekstrarafgangi í fyrra og er það umtalsvert betri niðurstaðan en fjárhagsáætlun ársins með viðaukum gerði ráð fyrir en samkvæmt henni var gert ráð fyrir 86 milljón króna neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Helsta skýringin er söluhagnaður rekstrarfjármuna sem nam 64,4 milljónum. Árið 2022 var rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins neikvæð um 86 milljónir.
|
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |