Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:13 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:13 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:13 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:13 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:13 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:13 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Viðburðir
Þessi viðburðarlisti er ekki tæmandi. Hægt er að senda inn upplýsingar um viðburð með því að smella hér að neðan.
Senda inn upplýsingar um viðburð
Afhjúpun minningarstöpuls á Blönduósi
Sunnudaginn 27. september næstkomandi verður á Blönduósi afhjúpaður stöpull til minningar um Sigurð Jónasson (1863-1887) frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal og bókmenntaafrek hans, en hann íslenskaði á unga aldri bókina „Kúgun kvenna“ eftir enska heimspekinginn John Stuart Mill. Athöfnin verður klukkan 13:00 og mun taka um 45 mínútur.
Eftirtaldir muna flytja stutt ávörp:
Valgarður Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar,
Þór Jakobsson veðurfræðingur, verkefnisstjóri,
Kristín Margrét Sigurðardóttir fyrir hönd fjölskyldunnar,
fulltrúi stjórnar Kvenréttindafélags Íslands og
Auður Styrkársdóttir forstöðumaður Kvennasögusafnsins og formaður Alþingisnefndar um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.
Að lokum munu ungmenni á Blönduósi kippa í spottann.
Stöpullin verður reistur á mótum Húnabrautar og Árbrautar (handan við Árbraut 1 og Húnabraut 9.
Verkefnið er unnið að frumkvæði ættmenna Sigurðar Jónassonar og kostað af þeim, Blönduósbæ og frjálsum framlögum áhugafólks. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra veitti rausnarlegan styrk. Kvenréttindafélag Íslands hefur stutt verkefnið með ráðum og dáð og einnig hefur Kvenfélagasamband Íslands, Þekkingarsetrið á Blönduósi o.fl. veitt lið hugmyndinni um stöpulinn. Þess má geta að svo vill til að minningarstöpullinn verður afhjúpaður á fæðingardegi frumkvöðuls kvenréttinda á Íslandi, Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, 27. september.
Málmsteypan Hella í Hafnarfirði og Steinsmiðja S. Helgasonar unnu verkið.
Allir eru velkomnir að vera við afhjúpunina.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |