Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:29 0 0°C
Laxárdalsh. 12:29 0 0°C
Vatnsskarð 12:29 0 0°C
Þverárfjall 12:29 0 0°C
Kjalarnes 12:29 0 0°C
Hafnarfjall 12:29 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 22. október 2013 - kl. 09:56
Fyrirkomulag rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra

Fyrirkomulag rjúpnaveiða á afréttarlöndum Húnaþings vestra á komandi veiðitímabili hefur verið ákveðið. Þess er vænst að veiðimenn virði fyrirkomulagið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Fyrirkomulag rjúpnaveiða á afréttarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2013:

1.    Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða á afréttarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði.
Svæðin eru:
1. Víðidalstunguheiði ásamt Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Öxnatungu.
2. Arnarvatnsheiði og Tvídægra.

2.    Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2013 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Ekki er um að ræða sölu á dagsleyfum.

3.    Veiðileyfin verða til sölu á skrifstofu Húnaþings vestra á Hvammstanga, hjá Ferðaþjónustunni Dæli og Söluskálanum Hvammstanga. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000-.

4.    Fjöldi veiðimanna á veiðisvæðin verður ekki takmarkaður, en tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að benda þeim er fara á veiðisvæði án leyfis á að nærveru þeirra sé ekki óskað á veiðisvæðinu. Veiðimenn eru einnig hvattir til að tilkynna slík tilfelli til skrifstofu Húnaþings vestra.

5.    Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið