Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:03 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:03 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:03 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:03 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:03 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:03 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í vikunni var haldið í Grettisbóli víkinganámskeið fyrir upprennandi víkinga
sem tókst með miklum sóma. Tíu krakkar sóttu námskeiðið og nutu þess að gerast
víkingar um tíma í blíðviðrinu sem er í Húnaþingi þessa dagana. Grettishátíðin hófst
í dag í Grettisbóli á Laugarbakka og er dagskrá hátíðarinnar fjölbreytt.
Á víkinganámskeiðinu klæddust börnin víkingaklæðum,
elduðu víkingamat og smíðuðu vopn. Þau reistu víkingatjald fóru í ýmsa leiki,
spiluðu kubb og skutu af boga. Svo eitthvað sé nefnt af fjölbreyttri dagskrá.
Námskeiðið tókst með miklum sóma, enda frábærir krakkar sem tóku þátt. Á vef Grettistaks má sjá myndir frá
námskeiðinu en þaðan er meðfylgjandi mynd fengin að láni.
Fyrirhugað er að halda tvö önnur víkinganámskeið í
sumar ef næg þátttaka verður. Dagana 29.-30. júlí verður víkinganámskeið fyrir
aldurinn 10-13 ára og 5-6. ágúst fyrir aldurinn 6-10 ára.
Grettishátíð hefst í dag með fjölbreyttri dagskrá í
Grettisbóli á Laugarbakka. Spes Sveitamarkaður er opinn alla daga, víkingatjöld
eru komin á svæðið og þar verður sýnt handverk og handverksvinnsla.
Víkingaleikir verða í gangi á svæðinu, hægt að skjóta úr boga, fara í kubbspil
og hnefatafl og fleiri forna leiki. Víkingar verða á svæðinu og sýna vopn og
bardaga.
Bent er sérstaklega á að klukkan 7:00 á
laugardagskvöldið verður kveikt upp í grillinu í Grettishringnum og opið fyrir
alla að mæta með kjöt og annað góðmeti á grillið og njóta þess að borða
kræsingarnar í góðum félagsskap í Grettishringnum. Víkingaleikir verða á staðnum,
kubbspil, bogfimi, axarkast, aflraunir og fleira til að skemmta sér við.
Á sunnudeginum er síðan hin árlega aflraunakeppni um
Grettisbikarinn, þar sem heimafólk keppir um titilinn sterkasti karl og kona
Húnaþings vestra, en allir eiga kost á að reyna sig í keppninni. Finna má
reglur keppninnar á www.grettistak.is og
skráning á staðnum og á netfangið grettistakses@gmail.com.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |