Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:40 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:40 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:40 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:40 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:40 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:40 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í vetur hefur allmörg börn verið á reiðnámskeiðum hjá Hestamannafélaginu Neista en öflugt barnastarf hefur verið hjá félaginu undanfarin ár. Einnig nokkrir unglingar svo og eldra fólk verið í námi í knapamerkjum. Knapamerki eru röð námskeiða frá knapamerki 1 upp í knapamerki 5, sem kennd eru undir sömu formerkjum um land allt. Þau eru í umsjón Hólaskóla og reiðkennarar menntaðir þar, kenna yfirleitt á námskeiðunum.
Fjöldi manns hefur tekið þátt í þessum knapamerkjanámskeiðum á Blönduósi undanfarin 6 ár undir leiðsögn ýmissa reiðkennara. Kennsla er bæði bókleg og verkleg. Á hverju vori þreyta nemendur próf og standist þau prófið í einhverjum áfanga gefur það rétt til að hefja nám í næsta áfanga. Í vor hafa einhverjir nemendur á Blönduósi tekið próf í öllum áföngunum 5.
Uppskeruhátíð nemenda knapamerkja og barnastarfs Neista verður haldin í Reiðhöllinni Arnargerði í dag, sunnudaginn 26. apríl og hefst sýning nemenda klukkan 16:00. Þar sýna nemendur hvað þau hafa lært, allt frá börnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku upp í þá sem hafa meiri reynslu og hafa lokið prófum í hinum ýmsu stigum knapamerkjanna. Þetta verður frábær kynning fyrir þá sem hugsanlega hafa áhuga að læra meira í hestamennsku og sækja svona námskeið síðar. Reiðkennarar í vetur hafa verið Heiðrún Ósk Eymundsdóttir og Pétur Örn Sveinsson reiðkennarar í Saurbæ í Skagafirði.
Foreldrar bjóða upp á kaffisamsæti að hátíðinni lokinni. Allir eru velkomnir.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |