Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:38 0 0°C
Laxárdalsh. 02:38 0 0°C
Vatnsskarð 02:38 0 0°C
Þverárfjall 02:38 0 0°C
Kjalarnes 02:38 0 0°C
Hafnarfjall 02:38 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 06. október 2015 - kl. 13:20
Kanna dekkjakurl á sparkvöllum sveitarfélagsins

Byggðarráð Húnaþings vestra hefur falið rekstrarstjóra að kanna hvort dekkjakurl á sparkvöllum í sveitarfélaginu sé heilsuspillandi. Stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra hefur farið fram á það við sveitarfélög landsins að gervigrasvellir sem þaktir eru gúmmíkurli úr dekkjum verði endurnýjað í ljósi upplýsinga um að dekkjakurl á fótboltavöllum innihaldi krabbameinsvaldandi efni.

Bréf samtakanna var lagt fram á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í gær. Í fundargerð ráðsins kemur fram, hvað varðar sparkvellina á Hvammstanga og Borðeyri, að um sé að ræða svart gúmmí, vottað af framleiðanda fyrir leiksvæði barna. Það sé slitsterkt og brotni því lítið niður og gefi þar að leiðandi ekki frá sér jafn mikið eiturefni og annað gúmmí. Þá segir í fundargerðinni að fyrirtækið Sport-tækni hafi komið í sumar, hreinsað vellina, allt ryk, gróður og óhreinindi, þvegið kurlið og sett það aftur ofaní vellina ásamt viðbót.

Í bréfi Heimilis og skóla segir kurlið sé unnið úr ónýtum bíldekkjum og dreift á gervigrasvelli til að gera þá mýkri. Óþarfi sé að taka áhættu með efni sem mögulega gætu skaðað fólk. Þess vegna sé farið fram á það við stjórnendur sveitarfélaga landsins að unnið verði að því án tafar að endurnýja þá velli sem þaktir eru heilsuspillandi dekkjakurli svo börnin geti leikið sér og þjálfað færni örugg og við heilsusamlegar aðstæður.

Eins og áður sagði ákvað byggðarráð Húnaþings vestra að fela rekstrarstjóra að kanna hvort dekkjakurlið á sparkvöllum sveitarfélagsins væri heilsuspillandi.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið