Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:29 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:29 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:29 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:29 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:29 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:29 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í pistli sem Valdimar Guðmannsson skrifar hér á Húnahorninu gagnrýnir hann fyrirhugaða lagningu ljósleiðara um land sitt Bakkakot. Hann bendir á að nú eigi að leggja nýjan streng fyrir ljósleiðara í gegnum landið þrátt fyrir að slíkur strengur hafi verið lagður þar í gegn um leið og hitaveitulögnin til Skagastrandar varð gerð fyrir um þremur árum síðan. Valdimar finnst mjög illa farið með skattpeninga landsmanna.
Valdimar finnst það með öllu óskiljanlegt af hverju ekki megi nota strenginn sem fyrir er í stað þess að leggja nýjan streng í gegnum landið. Í pistli sínum nefnir hann tvær ástæður sem honum hafi verið gefnar upp. Að leigan á þeim streng sem fyrir sé svo dýr að það borgi sig fyrir sveitarfélagið að kaupa og leggja nýjan og að styrkur frá ríkinu til ljósleiðaravæðingar sveitarfélagsins falli niður ef sveitarfélagið eigi ekki strenginn sjálft.
Ríkisútvarpið fjallaði um þetta í fréttum sínum í gær ræddi við Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóra á Blönduósi sem tekur undir með Valdimari og segir alla í raun sammála honum. Það eru allir náttúrlega sammála því sem þarna kom fram og það er hálf ankannalegt að það skuli vera til staðar ljósleiðari og það sé ekki hægt að nota hann vegna þess að í rauninni þegar við höfum fengið okkar mat frá okkar ráðgjöfum og hönnuðum þá þykir það dýrara að ná strengnum upp sem fyrir er og tengja hann og síðan að leigja af viðkomandi aðila. Fyrst það er dýrara þá var tekin ákvörðun um það að leggja nýjan streng,“ segir Arnar Þór í samtali við Ríkisútvarpið.
Blönduós fær um 12 milljónir króna í fjárstyrk frá fjarskiptasjóði fyrir uppbyggingu ljósleiðara á svæðinu að sögn Arnars Þórs. Styrkurinn er hluti af verkefni til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |