Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:54 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:54 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:54 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:54 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:54 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:54 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Áform um álver við Hafursstöðum eru í biðstöðu þar sem ekki hefur verið unnt að tryggja orku fyrir álverið. Haft er eftir Ingvari Unnsteini Skúlasyni, framkvæmdastjóra Klappa Development ehf. í Fréttablaðinu í dag, að fundað hafi verið með orkufyrirtækjum en eins og sakir standi sé nægjanleg orka ekki á lausu. „Við erum að bíða eftir því að orkufyrirtækin telji sig geta selt orku,“ segir Ingvar.
Í júní í fyrra undirrituðu sveitarfélögin á Norðurlandi vestra samstarfssamning við Klappir Development ehf. um uppbyggingu og rekstur á 120.000 tonna álveri á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Hafursstaði í Skagabyggð. Sveitarfélögin voru Akrahreppur, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður.
Samningur sveitarfélaganna og Klappa var gerður í framhaldi þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi 15. janúar 2014 um að koma á samstilltu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra með uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Samstarfið byggir einnig á sameiginlegri yfirlýsingu sveitarfélaganna og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 10. október 2014, um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa með nýtingu raforku sem framleidd er í sýslunni.
Áætlanir gera ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tímabundnum störfum á byggingartíma. Orkuþörf álversins er 206 MW, sem reiknað er með að komi frá Blönduvirkjun í samræmi við vilja og samkomulag heimamanna og stjórnvalda þegar virkjunin var byggð. Tímasetning á afhendingu á orku frá Blönduvirkjun til álvers á Hafursstöðum byggist m.a. á að þá verði fyrir hendi orka til afhendingar til núverandi viðskiptavina virkjunarinnar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |