Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:09 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:09 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:09 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:09 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:09 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:09 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Svo gæti farið að vaktir lögreglumanna á Norðurlandi vestra verði ekki fullmannaðar á næstunni vegna námskeiða í Reykjavík. Vegna fjárhagsstöðu lögregluembættisins verða lögreglumenn sendir á námskeiðin á þeim tíma sem þeir eiga að vera að vinna á svæðinu svo ekki þurfi að borga þeim yfirvinnu. Þar af leiðandi er látið vanta á vaktirnar. Þetta kom fram á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í gær en þar voru rædd lögreglumál í sveitarfélaginu.
Byggðarráð hefur óskað eftir upplýsingum um hvaða daga sé að ræða sem námskeiðin verða í Reykjavík og hvernig löggæsla verði skipulögð þá daga.
Byggðarráð tekur undir áhyggjur lögreglumanna á Norðurlandi vestra af stöðu löggæslumála í umdæminu sem fram komu í ályktun Lögreglufélags Norðurlands. Í ályktunni er lýst yfir miklum áhyggjum vegna stöðu löggæslumála á Norðurlandi vestra. Mannfæð, mikill niðurskurður og önnur utanaðkomandi áhrif séu þess valdandi að lögreglumenn telji sig ekki geta brugðist við innan eðlilegs útkallstíma ef til kemur innan svæðisins.
„Ítrekað hefur það gerst að lögreglumenn séu einir á öllu löggæslusvæðinu þ.e.a.s. á öllu Norðurlandi vestra og hafi ekki aðra lögreglumenn að leita til. Þetta hefur margítrekað gerst og er engan veginn viðunandi,“ segir í ályktuninni.
„Metnaður lögreglumanna hnígur í aðra átt sem og ábyrgð gagnvart íbúum svæðisins. Er það skoðun lögreglumanna innan LNV að rétt sé að íbúum svæðisins sé kynnt hvernig staðan er.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |