Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:48 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sauðfé hefur ekki verið færra á Íslandi en nú í 40 ár samkvæmt hagtölum landbúnaðarins sem unnar eru úr haustskýrslum. Bændablaðið fjallar ítarlega um málið í dag og þar kemur fram að ef sauðfjárhald er skoðað eftir landshlutum þá er það öflugast í Norðvesturumdæmi (þar með taldir Vestfirðir), eða 112.085 vetrarfóðraðar kindur.
Í öðru sæti er Vesturumdæmi með 102.175 fjár. Þrjú umdæmi koma síðan með nokkuð áþekkan fjölda sauðfjár. Þar er Norðausturumdæmi sem lendir í þriðja sæti yfir landið með 68.789 kindur, Austurumdæmi er í fjórða sæti með 65.753 og Suðurkjördæmi í fimmta sæti með 64.931 kind. Suðvesturumdæmi rekur svo lestina með 2.216 kindur.
Um síðustu áramót taldist ásett sauðfé í landinu vera 415. 949, en þar af eru 1.471 geit. Árið 1980 taldist vetrarfóðrað sauðfé vera 827.927 gripir. Árið 1985 var farið að fækka nokkuð í stofninum sem þá var 709.257 fjár. Árið 1990 var talan komin í 548.508 og í 458.341 árið 1995. Árið 2000 var sauðféð 465.777 og hefur sá fjöldi haldist nokkuð svipaður, upp eða niður um 10.000 fjár eða svo. Þannig komst fjöldinn í 479.841 árið 2010 og mest í 486.598 fjár árið 2014. Sauðfé í landinu er nú um helmingi færra en það var 1980, eða 50,3%, og beitarálag hefur að sama skapi minnkað verulega á flestum landsvæðum. Þá hefur það alveg horfið á stórum svæðum þar sem sauðfjárbúskapur hefur lagst af.
Sjá nánar í Bændablaðinu í dag.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |