Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:47 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:47 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:47 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:47 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:47 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:47 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Íslandsmeistaramótið í Norrænu trapi fór fram á skotsvæði Skotfélagsins Markviss um helgina við bestu mögulegu aðstæður. Keppni var spennandi í unglingaflokk og karlaflokk og voru sett fjögur Íslandsmet á mótinu, þar af eitt tvíbætt. Sagt er frá þessu á Facebook síðu Markviss.
Í unglingaflokk var met Felix Jónssonar (71 dúfa) frá því fyrr í sumar tvíbætt, Elyass Kristinn byrjaði á því að bæta það um 8 dúfur með skorinu 79, Sigurður Pétur bætti svo um betur og er Íslandsmet unglinga í dag 88 dúfur. Leikar hjá unglingum enduðu því þannig: Sigurður Pétur (88 dúfur), Elyass Kristinn (79 dúfur) og Jón Gísli (65 dúfur). Saman mynduðu þeir svo unglingalið Markviss og settu þar Íslandsmet með samanlögðu skori 232 dúfur.
Í kvennaflokki mætti Snjólaug M Jónsdóttir úr Markviss og endaði á skorinu 101 sem er hennar fjórða besta skor í Norrænu trapi en hún á einnig núverandi Íslandsmet sem er 114 dúfur.
Spennan var mikil í karlaflokki en Stefán Kristjánsson kom, sá og sigraði er hann skaut 135 dúfur af 150 (20 í úrslitum) og bætti met sitt frá því fyrr í sumar sem var 123 dúfur. Í öðru sæti var Guðmann Jónasson úr Markviss með 122 dúfur og 24 í úrslitum og í þriðja sæti var Timo Salsola SÍH með 118 dúfur og 23 í úrslitum.
Með þessu frábæra skori tókst liðsfélögum SÍH-A að bæta Íslandsmetið (344 dúfur) frá því í fyrra og skutu þeir Stefán Kristjánsson (135), Ásbjörn Sírnir Arnarson (120) og Bjarki Magnússon (114) samanlagt 369 dúfur.
Myndir frá mótinu má sjá á Facebook síðu Markviss.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |