Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:12 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:12 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:12 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:12 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:12 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:12 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á baksíðu Morgunblaðsins í dag er fjallað um Gallerí Bardúsa á Hvammstanga þar sem verslunarsaga staðarins er rakin í máli og myndum. Rætt er við Þuríði Þorleifsdóttur sem staðið hefur vaktina í verslunarminjasafninu síðan í maí 2018. Þuríður er ánægð með viðtökurnar og segir að allir sem þangað komi hafi sagt að heimsóknin hafi verið skemmtileg og þá sé takmarkinu náð.
Þuríður segir að gestir vilji gjarnan kaupa ýmsa muni úr kramversluninni, til dæmis fatnað, skó, smávöru og fleira, en eðlilega séu þeir ekki allir til sölu. Hún nefnir að í fyrra hafi erlendur ferðamaður viljað kaupa gamla Álafossúlpu og borga fyrir hana 100 þúsund krónur. Hún hafi sagt að úlpan væri ekki til sölu en þá hafi hann hækkað tilboð sitt í 700 þúsund. Svarið var aftur nei, enda yrði ekkert eftir í safninu ef selt væri úr því.
Þuríður segir að vegna frumkvæðis kjarnorkukvennanna Eddu Hrannar Gunnarsdóttur og Kolbrúnar Karlsdóttur hafi safnið orðið að veruleika. Reksturinn hafi þó gengið illa og svo hafi farið að þegar stjórn sjálfseignarstofnunarinnar ætlaði að loka safninu hafi hún tekið að sér reksturinn sem samfélagsverkefni. Til stendur að gera upp Norðurbrautarskúrin, sem var fyrsta vegasjoppan á svæðinu, og tengja hann við safnahúsið. Hugmyndin er að báturinn Bangsi, sem Bangsi, Björn Sigurðsson, smíðaði árið 1958, verði þar til sýnis.
Sjá nánar umfjöllun um Gallerí Bardúsa á baksíðu Morgunblaðsins í dag 7. september 2020.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |