Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:51 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:51 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:51 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:51 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:51 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:51 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Nemendur í Blönduskóla tóku þátt í skemmtilegu verkefni í síðustu viku er þeir settu niður 600 haustlauka sem kallast krókusar í kirkjuhólinn á Blönduósi. Björk Bjarnadóttir, umhverfisþjóðfræðingur og fyrrverandi nemandi við skólann, hafði yfirumsjón með verkefninu og nutu nemendur aðstoð hennar auk starfsfólks Blönduskóla og Snjólaugar hjá áhaldahúsi Blönduósbæjar. Sagt er frá þessu á vef Blönduskóla.
Þar kemur fram að Björk hafi fengið hugmyndina í vor þegar hún dvaldi hjá foreldrum sínum og gekk mikið um bæinn með son sinn í barnavagni. Þá blasti kirkjuhólinn við gulur og líflaus og Björk sá að þarna væri svæði sem gaman væri að fegra með krókusum. Hún setti sig í samband við skólastjóra Blönduskóla og hann ásamt öðru starfsfólki skólans tók vel í hugmyndina um að fegra kirkjuhólinn. Björk fékk upplýsingar frá starfsfólki Grasagarðsins í Reykjavík og var það henni innan handar um pöntun á laukum og hvernig ætti að bera sig að við gróðursetningu.
Litir og fegurð krókusanna munu gleðja þá sem bíða eftir vorinu. Þar sem þeir eru fjölærir og fjölga sér þá verður hægt að sjá þessa lauka á hverju vori í marga áratugi. Þeir eru fjólubláir, hvítir og gulir. Oftast byrja þeir að blómstra um miðjan mars og standa fram í apríl.
Markmið verkefnisins er að gleðja augað og fræða fólk á Blönduósi sem og annars staðar um hve gaman og auðvelt sé að fegra umhverfi sitt ef allir hjálpast að. „Að skilja eitthvað eftir sig sem blómstrar á hverju vori er fagurt og göfugt verkefni, sem mun vonandi vekja áhuga fólks á Blönduósi sem og annars staðar að fegra umhverfi sitt með hinum ýmsu laukum, blómum, grænmetis- eða trjáræktun,“ segir á vef Blönduskóla.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |