Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:53 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:53 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:53 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:53 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:53 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:53 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Um síðustu áramót voru 55.354 innflytjendur á Íslandi eða 15,2% mannfjöldans og fjölgaði þeim um 5.083 milli ára. Innflytjendur af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, þeir voru 5.264 í fyrra en eru nú 5.684. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 16,8% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Þetta kemur fram í tölfræði Hagstofunnar. Lægst er hlutfall innflytjenda á Norðurlandi vestra en þar voru 9,1% mannfjöldans innflytjendur og börn þeirra.
Um áramótin síðastliðinn bjuggu 39.115 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 64,1% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 27,9% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 19,9% mannfjöldans voru innflytjendur og börn þeirra. Á Norðurlandi eystra var það rétt um 10%, en lægst á Norðurlandi vestra eins og áður sagði.
Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 20.477 einstaklingar frá Póllandi eða 37% allra innflytjenda. Þar á eftir koma einstaklingar frá Litháen (5,9%) og Filippseyjum (3,8%). Pólskir karlar eru 39,3% allra karlkyns innflytjenda eða 12.121 af 30.866. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (6,7%) og síðan karlar með uppruna frá Rúmeníu (4,4%). Pólskar konur eru 34,1% kvenkyns innflytjenda, næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (5,8%) og þá konur frá Litháen (5%).
Sjá nánar á vef Hagstofunnar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |