Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 23:40 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 23:40 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 23:40 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 23:40 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 23:40 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 23:40 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og sjónvarpsstöðin N4 hafa gengið frá samstarfssamningi um birtingu efnis frá starfssvæði samtakanna í helstu þáttum sjónvarpsstöðvarinnar á árinu. Samstarf samtakanna og N4 hefur nú varað óslitið frá árinu 2013 og hefur sjónvarpsstöðin framleitt fjölda vandaðra innslaga um það sem efst er á baugi í landshlutanum hverju sinni til birtinga í dagskrá sinni, að því er segir á vef SSNV.
Þar kemur fram að til viðbótar við þessa samninga var hluta þess fjármagns sem varið var til verkefna til að bregðast við aðstæðum vegna COVID-19 á árinu 2020 sett í framleiðslu þáttanna Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra þar sem kynnt var fjölbreytt úrval afþreyingar, gistingar og veitingastaða í landshlutanum auk náttúru og mannlífs svæðisins.
Á vef SSNV segir:
„Upphaf samstarfsins má rekja til niðurstöðu könnunar sem unnin var af Gallup þar sem í ljós kom að verulega hallaði á umfjöllun um mannlíf og menningu á Norðurlandi vestra í fjölmiðlum. Einnig þótti mikilvægt að skrásetja með þessum hætti mannlíf á svæðinu, eiga viðtöl við fólk um störf þess og verkefni og þannig safna aðgengilegu myndefni af íbúum, staðháttum og þróun landshlutans. Ekki er óvarlegt að á þeim árum sem samstarfið hefur varað hafi á bilinu 2-3000 manns af starfssvæðinu komið fram í þáttunum. Heimildagildi þessa efnis er því ótvírætt.
„Könnun sem gerð var meðal þeirra sem komið hafa fram í þáttunum leiddi í ljós 90% ánægju þeirra og svipað hlutfall taldi að umfjöllunin hefði skilað aukinni þekkingu um starfsemi fyrirtækisins og/eða stofnunarinnar. Byggt á þessum niðurstöðum var auðvelt að taka ákvörðun um að halda samstarfinu við N4 áfram. Þá hefur einnig komið í ljós að umfjöllunin á N4 vakti áhuga annarra fjölmiðla á svæðinu og fór í kjölfarið að bera meira á RÚV, Stöð2, Morgunblaðinu og Vísi á svæðinu.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |