Nýr samningur um Vatnsdalsá  •   Stökuspjall: Fjóla og músareyra  •   Undirbúningur að uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð í Miðfirði í fullum gangi  •   Samningur um samvinnurými á Skagaströnd  •   Birna Ágústsdóttir sett tímabundið sem sýslumaður á Vesturlandi  •   Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar  •   Jóhann Örn ráðinn tengslafulltrúi á fjölskyldusviði Húnaþings vestra  •   Íbúafundur í Skagabyggð á sunnudaginn  •  
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:20 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:20 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:20 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:20 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:20 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:20 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
Fréttir | 22. mars 2021 - kl. 10:34
Magnús skipuleggur nýja söguferð
Sagnamaðurinn Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum frumkynnir á facebooksíðu sinni nýja söguferð sem hann er að skipuleggja í samvinnu við trausta ferðaskrifstofu. Ferðin tekur fjóra daga og verður gist í þrjár nætur. „Lúxusgisting á góðum hótelum,“ segir Magnús og að ákveðið hafi verið að ferðin hefjist og í Reykjavík 5. ágúst næstkomandi. „Farkosturinn verður lúxusbíll sem kemst erfiðar leiðir án þess að farþegum líði mjög illa. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 auk bílstjóra og leiðsögumanns. Fámennur en vonandi góður hópur.“
Sögur ferðarinnar verða fjölbreyttar, m.a. um:
- För Reynisstaðabræðra 1780, afdrif þeirra og eftirmál. Vonandi verður hægt að aka nærri þeirri leið sem þeir héldu úr byggð í sína hinstu för og komið verður á Beinhól.
- Líf Fjalla Eyvindar og Höllu sem lifðu á fjöllum nokkrum áratugum fyrr. Komið verður á Hveravelli og jafnvel kíkt á brún Þjófadals.
- Frá Áfangafelli verður horft niður Forsæludalskvíslar og sagt frá Biri Eysteinssyni, sem fór á Réttarhól árið 1885 með konu sína barn og þar fæddist Lárus sonur þeirra síðar bóndi í Grímstungu.
- Öxin, Agnes og Friðrik, ekinn verður hringur í Vatnsdal og um Vatnsnes. Sagt frá morðum, aftöku og dulrænum skilaboðum að handan.
- Komið verður á Þrístapa þar sem síðasta aftakan fór fram. Eftir skilaboð frá Agnesi rúmlega 100 árum eftir dauða hennar fundust beinin. Afi og pabbi tóku þátt í uppgreftrinum.
- Skáld Rósu verður gerð skil og komið að Vatnsenda og að grafreit hennar að Efra Núpi í Miðfirði.
- Grettir sterki Ásmundarson kemur við sögu og komið að Bjargi og kíkt á hvar Þórhallastaðir í Vatnsdal eru. Þar glímdi Grettir við drauginn Glám og hafði betur.
- Fyrsti Húnvetningurinn fæddist á Þórdísarholti þegar Ingimundur gamli og Vigdís kona hans höfðu þar skamma viðdvöl á leið sinni að Hofi. Þessir staðir eru á leið okkar.
- Komið verður að Skammá, lítilli á sem rennur úr Réttarvatni í Arnarvatn stóra. Við Réttarvatn hittust Húnvetningar og Borgfirðingar í göngum á árum áður.
- Ekið verður niður með Norðlingafljóti. Ef við fáum bjart veður, verður sýn á Eiríksjökul og Langjökul einstaklega fögur. Þessa leið hef ég riðið fjórum sinnum og þekki hvernig útsýnið getur verið.
- Komið verður að Húsafelli, en síðan ekið yfir Kaldadal. Þar er ávallt magnað að fara. Á þeirri leið má hafa í huga hið magnaða kvæði Skúlaskeið. Örnefnin úr því kvæði m.a. Tröllaháls og Víðiker eru þekkt.
- Móðir mín var á unglingsárum send ein úr Grímsnesi um Kaldadal norður í Kalmannstungu til að sækja hest. Það er um 100 km leið. Oft hugsa ég til hennar á leið um Kaldadal.
Áhugasamir geta skráð sig með fyrirvara gerið það hér á facebooksíðu Magnúsar og á netfangið mao@centrum.is eða hringja í síma 898 5695.
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |