Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:57 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynntu nýtt verkefni Tryggð byggð á fundi í Hofi á Akureyri síðdegis í gær, en það á að stuðla að stóraukinni uppbyggingu íbúðarhúsnæðis utan suðvesturhornsins. Um er að ræða samstarfsvettvang allra þeirra sem koma að húsnæðismálum á landsbyggðinni.
Í gegnum Tryggða byggð verður bætt aðgengi að upplýsingum um sérstök landsbyggðarlán, stofnframlög og byggðaframlög, samstarf við opinbera leigufélagið Bríeti og stuðning sem HMS veitir á hönnunar- og undirbúningsstigi.
Á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir að fundurinn hafi verið vel sóttur af sveitarstjórnarfólki á Norðurlandi og fulltrúum byggingaraðila. Nýr vefur verkefnisins var jafnframt opnaður en þar má skoða á korti allar þær íbúðir sem eru í byggingu um landið með stuðningsúrræðum Tryggðar byggðar.
Þá var á fundinum kynnt ný skýrsla um þróun húsnæðismarkaðar utan suðvesturhornsins. Þar kemur fram að stöðnun hafi ríkt í húsnæðismálum landsbyggðarinnar á löngum köflum en að núverandi uppbyggingaráform, sem séu umtalsverð, megi meðal annars skýra með tilkomu nýrra stuðningskerfa ríkis og sveitarfélaga.
Í skýrslunni er Blönduós nefnt sem dæmi um hvar úrræðin hafi skilað góðum árangri. Þar var húsnæðismarkaðurinn mjög óvirkur yfir langt skeið og ekkert var byggt á svæðinu á tímabilinu 2008-2018. Árið 2018 fór að draga til tíðinda í kjölfar uppbyggingar gagnavers, en þá sótti byggingarverktaki í samstarfi við sveitarfélagið um að byggja fimm íbúðir og fékk til þess landsbyggðarlán frá HMS. Mikil eftirspurn var eftir íbúðunum sem voru ætlaðar ýmist til sölu eða til útleigu og var því sótt um að byggja fimm íbúðir til viðbótar sem eru í undirbúningi um þessar mundir. Einnig er til umfjöllunar umsókn um stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúðum fyrir tekju- og eignalága. Húsnæðismarkaðurinn á Blönduósi hefur því á örfáum árum farið úr því að vera mjög kalt svæði yfir í að þar sé verið að byggja um tíu nýjar íbúðir.
Skýrsluna má lesa hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |