Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:35 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:35 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:35 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:35 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:35 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:35 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarstjórn Húnaþings vestra telur mikilvægt að ríkið komið til móts við minni sveitarfélög þegar kemur að uppbyggingu íþróttamannvirkja á landsbyggðinni. Skorar hún á stjórnvöld að koma á fót sjóði sem styrkir minni sveitarfélög á landsbyggðinni til uppbyggingar íþróttamannvirkja. „Því miður hefur það sýnt sig að minni sveitarfélög hafa ekki burði til að ráðast ein og sér í stórar framkvæmdir við uppbyggingu íþróttamannvirkja,“ segir í bókun sveitarstjórnar.
Á sveitarstjórnarfundi Húnaþings vestra í síðustu viku var rætt um bætta aðstöðu til íþróttaiðkunar barna á landsbyggðinni. Magnús Vignir Eðvaldsson lagði fram bókun þess efnis sem sveitarstjórn samþykkti samhljóða og var sveitarstjóra falið að koma henni á framfæri við viðeigandi ráðuneyti og þingmenn kjördæmisins.
Bókunin er þessi:
„Öll börn á Íslandi eiga rétt á að stunda íþróttir við hæfi og uppbygging á viðunandi aðstöðu til íþróttaiðkunar eykur til muna lífsgæði þeirra og styrkir búsetu á landsbyggðinni. Það er ljóst að bilið á milli stærri þéttbýliskjarna og landsbyggðarinnar hefur aukist gríðarlega á síðustu árum og minni sveitarfélög hafa hreinlega setið eftir þegar kemur að uppbyggingu á íþróttaaðstöðu. Því miður hefur það sýnt sig að minni sveitarfélög hafa ekki burði til að ráðast ein og sér í stórar framkvæmdir við uppbyggingu íþróttamannvirkja. Sveitarstjórn Húnaþings vestra telur mikilvægt að ríkið komi til móts við minni sveitarfélög þegar kemur að uppbyggingu íþróttamannvirkja á landsbyggðinni. Með því væri verið að jafna búsetuskilyrði á landinu og styrkja byggðir sem margar hverjar eiga undir högg að sækja. Sveitarstjórn Húnaþings vestra skorar á stjórnvöld að komið verði á fót sjóði sem styrkir minni sveitarfélög á landsbyggðinni til uppbyggingar íþróttamannvirkja.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |