Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:50 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
TextílLab, fyrsta stafræna smiðjan á sínu sviði hér á landi, verður opnuð með mikilli viðhöfn á morgun, 21. maí, á Þverbraut 1 á Blönduósi og verða tveir ráðherrar við opnunina. Í Fréttablaðinu í dag er fjallað um smiðjuna og rætt við Elsu Arnardóttur, forstöðumann Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi. Hún segir að nýrri tækni fylgi nýir möguleikar.
„Við höfum verið með stafrænan vefstól í nokkur ár en nú voru að bætast við stafræn prjónavél, stafræn útsaumsvél og laserskeri. Líka nálaþæfingarvél, í henni er meðal annars hægt að vinna með íslensku ullina því hún þæfist svo vel.“ Elsa kveðst sjá fram á að öll þessi tæki bjóði upp á nýjar framleiðsluaðferðir í bland við eldri. „Innblástur í nýsköpunina kemur úr menningararfinum,“ tekur hún fram í viðtalinu í Fréttablaðinu.
Textílmiðstöðin er þátttakandi í stóru Evrópuverkefni, Centrinno H020, með samstarfsaðilum í textíl, að sögn Elsu. „Við sóttum þar um styrk í Innviðasjóð og 75% af nýju tækjunum eru greidd úr honum. Það var grundvöllur þess að geta fjárfest í þeim,“ lýsir hún. Segir erlenda verkefninu hafa verið hleypt af stokkunum í september á síðasta ári, það muni standa í þrjú og hálft ár og stuðla að fjölbreyttu samstarfi og þekkingarmiðlun.
Eftir opnun TextílLabs á Blönduósi á morgun klukkan 14:00, verður opið hús til kl. 20:00. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir munu ávarpa gesti og að klippa í sameiningu á þráðinn þegar TextílLab verður opnað.
Sjá nánari umfjöllun um málið í Fréttablaðinu í dag.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |