Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:48 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í kynningarbæklingi samstarfsnefndar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um sameiningartillögu kemur fram að það sé framtíðarsýn Húnvetninga að Austur-Húnavatnssýsla verði umhverfisvænasta samfélag landsins. Stofnun umhverfisakademíu og markviss stefnumótun séu meðal fyrstu aðgerða í þá átt. Stuðningur stjórnvalda við stofnun umhverfisakademíu, atvinnuþróun og samgöngubætur eru forsenda þess að framtíðarsýnin nái fram að ganga.
Hugmyndir eru um stofnun umhverfisakademíu í Húnavallaskóla. Ef sveitarfélögin sameinast mun Húnavallaskóli og Blönduskóli sameinast og skólahald þá væntanlega leggjast af á Húnavöllum í kjölfarið. Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Magnús B. Jónsson, fyrrverandi sveitarstjórna á Skagaströnd, en hann átti sæti í starfshópi sem mótaði tillögur um umhverfisakademíu. Segir hann að hugmyndin sé að setja upp grunnbúðir í Húnavallaskóla en einnig verði unnt að vera með verkefnið um afmarkaða þætti annars staðar í héraðinu. Nefnir hann rannsóknarstöð Biopol á Skagaströnd og Textílmiðstöðina á Blönduósi. Þá falli til ýmis rannsóknarverkefni á urðunarstaðnum í Stekkjarvík.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að starfshópurinn taldi umhverfisakademíu á Húnavöllum bæði gerlega og áhugaverða. Lagði hann til að sveitarstjórnirnar myndu leggja fram samtals 15 milljónir króna sem stofnfé. Blönduósbær og Húnavatnshreppur hafi tekið jákvætt í hugmyndina en sveitarstjórn Blönduósbæjar tengi afstöðu sína við að sameining verði samþykkt. Hvorugt sveitarfélagið tók afstöðu til fjárútláta í bókunum sínum. Magnús tekur fram að þótt hugmyndir heimamanna séu komnar fram eigi verkefnið eftir að þróast frekar í vinnu með sérfróðu fólki um slíka fræðslu.
Sjá nánari umfjöllun í frétt í Morgunblaðinu í dag.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |