Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:35 0 0°C
Laxárdalsh. 04:35 0 0°C
Vatnsskarð 04:35 0 0°C
Þverárfjall 04:35 0 0°C
Kjalarnes 04:35 0 0°C
Hafnarfjall 04:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Frá Húnavöllum
Frá Húnavöllum
Fréttir | 02. desember 2021 - kl. 17:47
Húnavatnshreppur úthlutar styrkjum

Á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps í gær var ákveðið að úthluta styrkjum til hinna ýmsu aðila. Hæsta styrkinn fær sóknarnefnd Þingeyraklausturskirkju, allt að 500 þúsund krónur, vegna sumaropnunar kirkjunnar á næsta ári. Ungmennasamband Austur-Húnvetninga fær 450 þúsund vegna starfsemi sambandsins árið 2022 og Björgunarfélagið Blanda fær 400 þúsund vegna endurnýjunar á snjósleðum á þessu ári.

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps fær 300 þúsund krónur í styrk vegna verkefna félagsins á næsta ári og Hestamannafélagið Neisti fær jafnháa fjárhæð í styrk vegna æskulýðsstarfs árið 2022. Ungmennafélagið Geislar fá 280 þúsund í styrk vegna verkefna félagins á næsta ári og reiðveganefnd Hestamannafélagsins Neista fær 200 þúsund króna fjárstuðning vegna gerð reiðvega.

Körfuboltaskóli Norðurlands og Félag eldri borgara í Húnaþingi fá 100 þúsund krónur hvort aðili vegna starfsemi þeirra á næsta ári. Jólasjóður A-Hún. fær sömu fjárhæð í styrk. Ungmennafélag Bólstaðarhlíðarhrepps færi 120 þúsund krónur í styrk, Stígamót 50 þúsund og AA samtökin á Blönduósi fá 40 þúsund. Þá var samþykkt að greiða svokallað vildargjald til Farskólans að fjárhæð 79 þúsund.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið