Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:57 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:57 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:57 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:57 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:57 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:57 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í liðinni viku tók Textílmiðstöðin á Blönduósi á móti samstarfsaðilum sínum í evrópska rannsóknarverkefninu Centrinno og komu þeir meðal annars frá Barcelona, Amsterdam og Genf, auk Háskóla Íslands. Þá var fundað á sama tíma í París og Mílanó. Vinnustofan sem haldin var fjallaði um uppbyggingu Textílmiðstöðvarinnar sem miðstöð sköpunar og vettvangs þar sem fólk deilir þekkingu og kunnáttu og hefur tækifæri til að rannsaka og þróa textíl í víðu samhengi.
Sagt er frá þessu á vef Textílmiðstöðvarinnar. Þar kemur fram að fulltrúar frá sveitarstjórn Húnabyggðar tóku þátt, þau Ragnhildur Haraldsdóttir, Erla Gunnarsdóttir, Elín Aradóttir, Edda Brynleifsdóttir og Birgir Þór Haraldsson, auk Péturs Arasonar sveitarstjóra. Katrín Margrét Guðjónsdóttir og Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra voru einnig á meðal þátttakenda. Starfsfólk Textílmiðstöðvarinnar og samstarfsaðilar þótti mikill akkur í því að fá tækifæri að vinna með heimafólki og var því mikil ánægja með þátttöku þess. Vinnustofurnar voru haldnar í Félagsheimilinu á Blönduósi og sá Kristín Ósk Bjarnadóttir um veitingar og ljósmyndun af hópnum.
Á dagskránni var jafnframt heimsókn í Ullarþvottastöðina þar sem Guðmann Halldórsson fræddi fólk um starfsemina og íslenska ull. Heimilisiðnaðarsafnið var heimsótt þar sem Elín Sigurðardóttir tók á móti gestum. Þá var gamli bærinn á Blönduósi skoðaður undir leiðsögn Katharinu Schneider og þær Stína Gísladóttir og Sveinfríður Sigurpálsdóttir sýndu og sögðu frá Vatnsdælureflinum. Sameiginlegur kvöldverður var á Brimslóð og á heimleiðinni var komið við í Kidka og verksmiðjan og vinnuferlið við framleiðsluna skoðað.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |