Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:03 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:03 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:03 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:03 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:03 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:03 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er þátttakandi í tveimur alþjóðlegum samstarfsverkefnum sem hlutu nýverið styrk úr Norðurslóðaáætlun. Verkefnin fjalla um að styrkja sjálfbæran vöxt, samkeppnishæfni og fjölgun starfa hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Vinnuheiti verkefnanna tveggja er annars vegar GLOW og hins vegar Target Circular.
GLOW snýr m.a. að því að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki að þróa hjá sér vistvæna myrkurferðaþjónustu með það að markmið að fjölga ferðamönnum á svæðinu yfir vetrartímann. Heildarkostnaður SSNV í verkefninu eru rúmar 32 milljónir króna. Norðurslóðaáætlunin fjármagnar rúmar 21 milljón þannig að framlag SSNV verður í formi vinnuframlags starfsfólks.
Target Circular hefur það að markmið að búa til úrræði fyrir atvinnuþróunarfélög og klasa og auka færni þeirra á þremur sviðum:
- Stuðningur við lítil og meðalstór sjálfbær fyrirtæki.
- Koma auga á tækifæri til nýsköpunar og útvíkkunar á þjónustu við lítil og meðalstór fyrirtæki.
- Nýta nýjar vísbendingar um hvernig best sé að bæta hlutfall lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnusköpun, vexti og samkeppnishæfni.
Heildarkostnaður SSNV í verkefninu eru rúmlega 22 milljónir króna og fjármagnar Norðurslóðaáætlun um 14,6 milljónir af því. Framlag SSNV í þetta verkefni er einnig í formi vinnuframlags starfsfólks.
Sagt er frá þessu á vef SSNV og þar er að finna nánari upplýsingar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |