Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:23 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:23 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:23 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:23 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:23 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:23 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Þrjátíu og níu krakkar frá Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga tóku þátt á Akureyrarmóti UFA og Norðlenska sem fram fór á Akureyri í gær. Þrjátíu og fimm krakkar komu frá Ungmennafélagin Hvöt sem er metþátttaka síðan frjálsíþróttadeildin var endurvakin. Á facebooksíðu frjálsíþróttadeildar Hvatar segir frá því að krakkarnir hafi staðið sig vel, margir hafi hrósað sigri yfir persónulegri bætingu og sumir fagnað verðlaunum á palli. Þá hafi nokkrir verið að stíga sín fyrstu skref í keppni og staðið sig vel.
Fram kemur að 20 krakkar voru skráðir til leiks í þrautabraut sem er fyrir níu ára og yngri en þar var keppt í boltakasti, skutlukasti, hindrunarhlaupi, boðhlaupi, langstökki, grindahlaupi og enda á reiptogi við foreldrana. Fimmtán keppendur voru skráðir í 10 ára og eldri og gátu þeir valið um að keppa í 60m hlaupi, 60m grindahlaupi, 400/600m hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi og skutlukasti. Umf. Hvöt hlaut 15 gull, tíu silfur og tvo brons. Þá fékk USAH flest gullverðlaun á mótinu eða samtals 17.
Sjá nánari umfjöllun á facebooksíðu frjálsíþróttardeildar Hvatar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |