Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur fallist á tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferðafræði við útrýmingu riðuveiki. Tillagan hefur verið kynnt í ríkisstjórn, en hún felst í því að markvisst verði unnið að hraðari ræktun riðuþolins sauðfjárstofns á ræktunarsvæðum sem eru skilgreind sem áhættusvæði. Sagt er frá þessi á vef Stjórnarráðsins.
Samkvæmt greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands, sem unnin var að beiðni yfirdýralæknis, er unnt að hraða mjög ræktun fyrir verndandi arfgerðum með markvissum arfgerðargreiningum. Með því að ráðast í þessa vinnu minnka líkur á riðusmiti, með tilheyrandi kostnaði fyrir einstaklinga og afleiddum áhrifum á samfélög.
Tillagan felst einnig í því að Matvælastofnun yrði heimilt að undanskilja frá niðurskurði fé sem sýnt er fram á að beri verndandi arfgerð. Því fé yrði því haldið í einangrun á viðkomandi jörð. Á þennan hátt má rækta upp fjárstofn með verndandi arfgerð á riðusvæðum samhliða því að styrkja sjúkdómavarnir.
„Stjórnvöld munu gera það sem þarf til að styðja bændur við að rækta upp verndandi arfgerðir gagnvart riðu. Samkvæmt tillögunni verða yfir 80% ásetts fjár á mestu áhættusvæðunum ólíkleg til að veikjast af riðu eftir fimm ár og þar af leiðandi hverfandi líkur á niðurskurði,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í tilkynningu. „Til að kveða megi niður þann vágest sem riðuveikin er þarf gott samstarf allra aðila, fjármögnun og afkastagetu við greiningar. Stefnt er að því að greina megi árlega 15 til 40 þúsund fjár og með þessum aðgerðum munu líkur á stórfelldum niðurskurði minnka hratt“.
Samkvæmt greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands nemur kostnaður við fyrrnefndar aðgerðir 567 milljónum á næstu 7 árum og verður sú fjármögnun tryggð.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |