Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:43 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:43 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:43 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:43 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:43 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:43 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Grettishátíð verður haldin að Laugarbakka í Miðfirði um verslunarmannahelgina 1. – 4. ágúst. Að þessu sinni er hátíðin helguð sagnaarfinum eða sagnalistinni. Dagskráin verður fjölbreytt alla helgina. Það verður margt góðra manna og kvenna til að segja sögur frá ýmsum löndum, á ýmsum málum og með ýmsum hætti. Grettisgarðurinn verður opinn öllum og verða þar sagnamenn, víkingar og handverksfólk. Ýmsir leikir verða við hafðir s.s. bogfimi, axarkast, grjótkast, fella og Grettiskúlugrip. Það verða sagðar súpusögur og fótasögur og bakað brauð sem kallast „iljar Grettis“.
Í Grettisbóli og í Félagsheimilinu Ásbyrgi verða sýningar, fyrirlestrar og uppákomur. Hanna Margret Snorradóttir leikari og sagnakona, leiðir fólk inn í töfraheim sögunnar og kennir fólki að ferðast í sögu. Færeyskur danshópur skýrir dansinn út frá sögunni eða söguna út frá dansinum. Hilmar Agnarsson orgelleikari og kórstjórnandi tengir söguna við sönginn. Helgi Þór og hljóðfæraleikarnir syngja og leika sögur. Hljómsveitin Lexía hvetur fólk til þátttöku og segja sína sögu með fótunum.
Á Bjargi verður kraftakeppni og er það Andrés Guðmundsson kraftakall sem stjórnar aðgerðum. Hátíðin verður sett kl 18.00 föstudaginn 1. ágúst og stendur linnulítið fram til mánudagsins 4. ágúst.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |