Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:24 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:24 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:24 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:24 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:24 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:24 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Nú erum við hjónin búin að selja jörðina innan
fjölskyldunnar. Við komum “heim” um jóla og páska og oftast um Húnavöku. Við
hittum fólk og öllum finnst gaman. Þau sem keyptu jörðina eignast börn eins og
gengur og gerist og þau eru frjósöm. Þrjú börn á 4 árum, geri aðrir betur.
Elst er stelpan Elsa, svo kemur Kormákur einu og hálfu
ári síðar. Signý er yngst. Elsa og Kormákur hafa því verið leiksystkin í nokkur
ár. Eins og allir vita þá fara yngri bræður oft frekar í taugarnar á systrum
sínum þrátt fyrir að þeim finnst ósköp vænt um þá en stundum er þetta “to
much”. Líða nú árin og Elsa og seinna Kormákur fara í grunnskólann á
Húnavöllum. Þar hitta þau jafnaldra sína úr sveitinni. Heldur hefur nú fækkað
börnum, karlar náttúrulausir og kellur komnar á aldur.
Jafnaldri Elsu er strákur sem henni finnst ekkert
sérstaklega skemmtilegur. Af því að Kormákur er svona rétt hjá þeim í aldri er
þeim öllum kennt saman. Í skólanum eru 40 nemendur á öllum aldri. Það er
óheppilegt að 10. bekkur er með 10 nemendur og engin árgangur að fara að fylla
það skarð. Elsu býður það hlutverk að vera með þessum strákum það sem eftir er.
Hún kemst aldrei úr umönnunarhlutverkinu.
Afhverju er mér ekki nákvæmlega sama?
Með vinsemd og virðingu,
Gunnar Rúnar
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |