Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:48 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ágæti Nöldri. Þú argast út í hitt og þetta. Ekkert gagnaver eftir 7 ár, ekkert álver, en skýringin er nærtæk, það gerist ekkert í svefnbæjunum Skagaströnd og Blönduósi og ástæðan er að þetta eiga að vera svefnbæir um aldur og æfi. Skagaströnd var útgerðarbær, góð fiskimið stutt undan, og fólk hafði það gott og á vertíð í Grindavík var toppurinn á vetrarvertíð bæði fyrir útgerð og sjómenn. Á þessum árum var Blönduós vel inni, vel rekið Hótel allt árið, mikil þjónusta við bændur. Nú er þetta sem verið er að lýsa allt í kringum landið.
Sjávarútvegsstefnan byggðaeyðingarstefna bæir allt í kringum landið eiga ekki viðreisnarvon og ástæðan er (pólitík). Sérhagsmunir ráða ferðinni arfavitlaus stefna. Nú er stutt til kosninga og þá koma loforðin eins og á færibandi sem er vitað að er slitið. Það fór um mig hrollur að lesa baksíðu Gluggans næstsíðast þegar auglýst var eftir því sem er vitað að er ekki til þ.a.s. vantar allt sem við á að éta. En síðasta baksíða Gluggans sló öll fyrri met í heimsku. FRAMTÍÐARSTÖRF Í SJÁVARÚTVEGI Á SAUÐÁRKRÓKI fólki keyrt frá Skagaströnd og Blönduósi. Það er bara lítilsvirðíng við íbúa þessara staða það vita allir hvernin er í pottinn búið það stendur autt og ónotað stórt fiskvinnsluhús á Skagaströnd það þarf bara að innkalla kótann og þeir sem vilja ekki gera út sína ísfisktogara á landsbyggðinni fá engann kóta það þarf 2 togara á Skagaströnd og 3 línubátaog frjálsar handfæraveiðar. Þetta myndi gjörbillta ástandinu og viturlegra þá að áforma stærri verkefni eins og Hótel.
En undirstaðan verður alltaf að vera til staðar. Það gengur ekki lengur óskhyggja og fallsvonir. Aðkomu Byggðastofnunar og bankanna ætti að skilyrða við þetta verkefni og að þeir hætti að ausa fjármunum út um gluggann þ.a.s. í rugl og vitleysu.
Ágæti Nöldri ég skora á þig að standa þig. Þú komst út úr moldarkofanum en bara til að pissa. Laxasetur lokað, Hafíssetur lokað, skólpræsi opið hjá Blöndubóli, áratuga barátta skilað engu. Rekstur Ljóns Norðurðsins aflagður.Bæjaryfirvöld ótrúlega seinheppin í mannaráðningum og vinavali, sorgarsaga. Upp með sokkana Nöldri ekki meira halílúja.
Jónas á Ljóninu
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |