Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 16. júní 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Júní 2024
SMÞMFL
2627282930311
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 06:33 0 0°C
Laxárdalsh. 06:33 0 0°C
Vatnsskarð 06:33 0 0°C
Þverárfjall 06:33 0 0°C
Kjalarnes 06:33 0 0°C
Hafnarfjall 06:33 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
76. þáttur. Eftir Jón Torfason
15. júní 2024
Eftir Guðmund Inga Guðbrandsson
15. júní 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
13. júní 2024
Eftir Ásgerði Pálsdóttur
09. júní 2024
Eftir Dagnýju Rósu Úlfarsdóttur
05. júní 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
03. júní 2024
75. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. maí 2024
Fab Lab smiðjur á Íslandi
Fab Lab smiðjur á Íslandi
Fréttir | 22. maí 2024 - kl. 09:36
Endurnýja samninga um rekstur Fab Lab smiðja

Endurnýja á samninga við ellefu Fab Lab smiðjur sem eru víðs vegar um landið, þar á meðal á Blönduósi og Sauðárkróki. Í gær undirrituðu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari nýjan samning um Fab Lab í Reykjavík. Undirritun samningsins er sú fyrsta í röðinni í því ferli að endurnýja samninga við Fab Lab smiðjur á landinu.

Sagt er frá þessu á vef Stjórnarráðsins. Þar kemur fram að markmið með starfsemi Fab Lab Reykjavík er að auka þekkingu og leikni nemenda, kennara, almennings, frumkvöðlum og fyrirtækjum á persónumiðaðri nýsköpunarvinnu og stafrænum framleiðsluaðferðum. Verkefninu er ætlað að styðja við þátttöku og áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum samhliða því að auka tæknilæsi, skapandi starf og frumkvöðlamennt. Það skapar vettvang fyrir þróun og prófun hugmynda og efla þannig samkeppnishæfni í nærsamfélagi.

Auk HVIN og MRN hafa sveitarfélög og ýmis fyrirtæki og stofnanir staðið að samningum við Fab Lab smiðjur. Rík áhersla hefur verið lögð á samstarf við heimamenn á viðkomandi stöðum um fjármögnun og uppbyggingu smiðjanna, en þær þjóna annars vegar tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum og hins vegar atvinnulífi, íbúum og frumkvöðlum í nærsamfélaginu.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið