Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:18 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:18 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:18 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:18 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:18 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:18 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það eru svo margar tilfinningar sem við upplifum á lífsleiðinni, sumar neikvæðar, en sem betur fer margar jákvæðar. Meðal þessara jákvæðu tilfinninga er svo fjöldinn allur af ólíkum tilfinningum; stolt, eftirvænting, gleði, spenna, ást, ánægja, unaður, hamingja, sanngirni, vinátta, þolinmæði – og svona mætti lengi telja.
Það er nú ekki oft sem ég er ósammála íslenskri orðabók
en það gerðist þegar ég fletti upp orðinu stolt, sem í mínum huga er jákvætt
orð. Það að vera stoltur af einhverju finnst mér vera góð, jákvæð og sérlega
þægileg upplifun og, í mínu tilfelli, alveg án þess að ég sýni þótta eða
mikillæti – vona ég í það minnsta.
Þegar ég fletti upp á orðinu stolt í íslensku orðabókinni minni sá ég að þar stóð: það að vera stoltur, dramb, ofmetnaður,
dreiss, gorgeir; þótti, mikillæti, stórlæti (sökum mats á sjálfum sér).
Þessa ágætu orðabók fékk ég í fermingargjöf seint á
síðustu öld... og er ég nokkuð sannfærð um að í allri þróun okkar ástkæra
ylhýra tungumáls þá hefur merking þessa orðs breyst hjá okkur notendum þess.
Getur ekki verið að þessi skýring sé frá þeim tíma er
enginn mátti hampa sér eða sínu án þess að vera litinn hornauga. Ég vona það,
því ég er oft stolt – og það eru hinir ólíkustu hlutir og atvik sem geta kallað
fram þessa jákvæðu tilfinningu hjá mér.
Ég er stolt þegar börnin mín eða einhverjir aðrir mér
nákomnir sýna góða frammistöðu, hvort sem það er að koma heim með góðan
vitnisburð úr skóla, að viðkomandi stígi út fyrir þægindahringinn sinn og
upplifi sigur á einhverju sviði, þegar liðið mitt (sem getur átt við um nokkur
lið, allt eftir íþróttagrein og landi) stendur sig vel, þegar íslenskir
keppendur standa sig vel á alþjóðlegum vettvangi, þegar börn í skólanum sýna
sanna vináttu í verki eða skila verkefni sem fer langt framúr væntingum – og svo
óendanlega margt annað sem fyllir mig þessari yndislegu tilfinningu; stolti.
Stundum eru það skrítnir hlutir sem fylla mig stolti,
eitthvað sem fyrir einhvern annan væri ekkert tiltökumál. Sem dæmi um slíkt
dettur mér í hug þegar ég bakkaði kerru fullri af grasi úr garðinu mínum upp að
gámi á Endurvinnslustöðinni. Endi kerrunnar var svo fullkomlega samsíða brún
gámsins að hrein unun var á að líta. Mig langaði mest til að hlaupa heim, sækja
myndavél og taka mynd til að geta sýnt öllum heiminum hvað ég stóð mig vel.
Líklega þykir þeim þetta ekkert tiltökumál, sem reglulega draga stórar kerrur
og vagna um allt og bakka þeim þangað sem ætlunin er að þessar græjur standi,
frussa jafnvel kaffinu sínu með vanþóknun eða kjánahrolli við að lesa þetta –
en trúið mér, ég var mjög stolt af þessu og get auðveldlega kallað fram myndina
af kerrunni upp við gáminn í huga mér og upplifað þessa tilfinningu aftur og
aftur. Ahh!
Ef ég gríp í tómt þegar mig vantar poka í ruslatunnuna
hér heima þá verð ég stolt en ekki pirruð, því það þýðir að heimilisfólkið
hefur verið sérstaklega duglegt að fara með margnota poka í búðina.
Ég verð líka ótrúlega stolt þegar ég fer út með ruslið
á sunnudagskveldi og sé aðeins tvo til þrjá poka í tunnunni og það á að tæma
hana daginn eftir. Endurvinnslutunnan við hliðina er hins vegar við það að
verða full. Sumir gætu nú kallað þetta endemis vitleysu, en þetta fyllir mig
stolti. Ég er stolt af því að flokka og ég er afar stolt yfir því að hér heima
þyki það til dæmis ekki tiltökumál að skola skyrdósina eða mjólkurfernuna og
setja á réttan stað. Vonandi bætast fleiri í þennan hóp flokkara hið fyrsta því
ég hef heyrt að holan stóra sem grafin var hér rétt utan við bæinn sé að fyllast
óþarflega hratt – og af því er ég ekki stolt.
Njótum stundarinnar – og njótum þess þegar okkur gefast
tækifæri til að vera stolt, stolt af okkur sjálfum eða bara hverju sem er. Það
er mjög notaleg tilfinning.
Húsfrúin
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
|
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
|
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
|
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
|
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
|
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
|
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
|
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
|
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
|
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
|
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
|
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
|
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
|
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |