Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:37 0 0°C
Laxárdalsh. 15:37 0 0°C
Vatnsskarð 15:37 0 0°C
Þverárfjall 15:37 0 0°C
Kjalarnes 15:37 0 0°C
Hafnarfjall 15:37 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 19. júní 2014 - kl. 22:14
Að grípa tækifærið
Eftir Guðríði B. Helgadóttur

Ekki þarf að fletta lengi blöðum sögunnar til að sjá hversu giftusamlega þessi staðreynd hefur tekist fyrir framþróun og efnahag lands og þjóðar.

Þess vegna er ekki að ástæðulausu að minna á það nú, og taka undir með skáldinu:                

Tækifærið gríptu greitt
giftu mun það skapa.
Járnið skaltu hamra heitt.
Að hika er sama og tapa.

Við að lesa Bændablaðið í morgun, þ. 19. júní, og minnast um leið þjóðhátíðarræðu forsætisráðherrans þ.17. júní, þar sem hann talaði um mikilvægi þess að landsbyggðin blómstraði og nyti sín til jafns við þéttbýlið, þá fyllist maður bjartsýni um að hugur fylgi nú máli hjá máttarvöldum landsins og mannlega yrði tekið undir, ef einhver þar úti fyndi hjá sér hvöt til að grípa tækifærið og taka myndarlega til hendi við að byggja upp framtíðar fyrirtæki til atvinnuþróunar í stóru og samfelldu byggðarlagi.

Eins og til dæmis Húnavatnssýslurnar hafa uppá að bjóða, ásamt landkostum og góðum grunni skóla og fyrirtækja sem undirstöðu.

Það stendur nefnilega á forsíðu Bændablaðsins að stórum eignarhlutum í ullarverksmiðjunni Álafossi , sem til sölu eru nú, hafi á síðustu stundu verið forðað frá því að vera  seldir til vafasamra kaupenda, (erlendra ?), og bíði nú þess að skynsamlegar verði að málum staðið með framtíð þessa rótgróna atvinnuvegar og svo mikilvæga í sögu lands og þjóðar.

Kveikir þetta ekki í einhverjum metnað og þor til að grípa  tækifærið og gerast merkisberi þessa fána, sem ætti að vera þjóðarstolt okkar Íslendinga. Þar sem íslenska ullin er svo sannanlega lífgjafi þjóðarinnar um aldir. Því án hennar værum við ekki til, forfeður okkar og mæður hefðu króknað úr kulda öll með tölu á löngum og dimmum hafísárum fyrri alda, ef þeir hefðu ekki haft ullina til að skýla sér og kunnað að gera úr henni flíkur.

Á Blönduósi er nú þegar fyrir hendi Ullarþvottastöðin, gengur ágætlega og nýtir vel heita vatnið frá uppsprettum héraðsins.  Á Blönduósi er líka Texstílsetrið, háskóli landsins á því fræðasviði, með Heimilisiðnaðarsafnið sér við hlið, hið fullkomnasta á landinu og þó víðar væri leitað.  Og svo vel vill til að Texstílsetrið er til húsa í hinu sögufræga húsi Kvennaskólanum, þar sem hægt er í heimavistinni  að taka á móti mörgum í senn til lengri eða skemmri tíma, við rannsóknir í fræðunum eða öðru því tengt. Samanber Vatnsdælasögu refilinn sem nú er þar í glæsilegri vinnslu.

Sú hin fræga Blönduvirkjun er í  um 40 km. fjarlægð frá Blönduósi. Til stendur að leggja frá henni mjög umdeilda loftlínu um grónar byggðir og dali, allt til Austfjarða með öllum þeim landspjöllum sem það mun valda.  Nærtækara sýnist og skynsamlegra að nýta orkuna sem næst upptökum og spara þar með mikinn flutningskostnað. Auk þess sem í Húnavatnssýslurnar vantar mikinn drifkraft til að hamla á móti fólksfækkun á svæðinu, með nýjum tækifærum og aukinni framleiðslu á öllum sviðum. Það er nefnilega landrými fyrir margefldan búskap í þessum sýslum, kúa og sauðfjárbændur, sem og hrossarækt, ef skynsamlega er að beitarstjórnun staðið og ræktun skipulögð með tilliti til staðhátta.   Þéttbýlisstaðirnir í héraðinu hafa alltaf þjónað byggðinni í kring með sóma og velferð þeirra blómstrað í takt við uppgang sveitanna því hvorugt getur án hinna verið ef vel á að vera.

Það er því ómögulegt annað en skora á Húnvetninga að taka nú hraustlega til við að skapa sér og sínum varanlega framtíð í heimabyggð, á svo traustum grunni, með öll landsins gæði í heimabyggð. Því í sambandi við og afleiðingum útfrá vaxandi og fjölþættri atvinnu, skapast líka störf fyrir yngra fólkið að koma afturtil starfa í heimahéraði. Skólar og fræðasetur hafa allsstaðar sýnt að svo er og verður um ókomin ár.

Þess vegna er óhætt að fullyrða með skáldinu og segja: „EI  LEITA  LÁNS í  ÁLFUM, VORT LÁN  BÝR Í OSS  SJÁLFUM,  Í VORUM  REIT,  EF  VIT  ER  NÓG.    

Guðríður B. Helgadóttir

Höf. rzg
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
Glaðheimar
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið