Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 02:23 0 0°C
Laxárdalsh. 02:23 0 0°C
Vatnsskarð 02:23 0 0°C
Þverárfjall 02:23 0 0°C
Kjalarnes 02:23 0 0°C
Hafnarfjall 02:23 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Yndisgarður á Blönduósi. Mynd: Yndisgrodur.lbhi.is
Yndisgarður á Blönduósi. Mynd: Yndisgrodur.lbhi.is
Nöldrið | Pistlar | 02. september 2014 - kl. 19:37
Septembernöldur
Nöldri snýr aftur eftir sumarfrí

Nú er að koma á daginn að nöldrið mitt um útbreiðslu skógarkerfils í bænum hefur átt  fyllilega rétt á sér. Ekkert hefur verið gert í því að hamla vöxt þessarar skaðræðisplöntu og nú í sumar kemur rækilega í ljós að hann bókstaflega æðir um bæinn. Hann er gjörsamlega búinn að yfirtaka gömlu túnin meðfram Hnjúkabyggðinni og er á góðri leið með að drepa meira að segja hvönnina sem þar hefur vaxið. Hann vex nú óhindrað uppmeð allri Þingbrautinni, hann þekur brekkurnar neðan við sjúkrahúsið, hann er kominn í kvenfélagsgarðinn og meðfram Bakkaveginum fjölgar hann sér ört og ég öfunda ekki íbúa við Árbrautina að fá þennan gest í garða sína til viðbótar við annað illgresi. Ég hef séð hann í limgerðum við Húnabrautina og í óræktar trjábeðunum við kirkjuna.

Skógarkerfillinn er ekkert lamb að leika sér við. Hann myndar mikil fræ sem dreifast auðveldlega þannig að útbreiðsla hans verður fljótt stórt vandamál sé ekkert aðgert. Hann er mikill skaðvaldur í varplandi mófugla sem forðast hann. Samkvæmt því sem ég hef lesið mér til um getur sláttur aukið rótarskot plöntunnar, svo eitur virðist eitt duga á hana, svo skemmtilegt sem það nú er. Það segir allt sem segja þarf að í Eyjafjarðarsveit hefur skipulega verið barist við útbreiðslu kerfilsins síðan 2008 en árangur ekki verið eins og væntingar stóðu til svo auðvelt er ekki að losna við hann.  

Nú herma nýjustu fréttir að Húnavatnshreppur hafi sagt skógarkerflinum stríð á hendur og munu hefja aðgerðir til að hamla ásókn hans. Væri nú ekki rétt að Blönduósingar gerðu slíkt hið sama.

Snemma í sumar birtist hér á Húnahorninu „Opið bréf til Nöldra“ frá Jónasi á Ljóninu.  Þetta bréf hans er með vinsamlegum tón í minn garð enda er ég hjatanlega sammála honum um það að lítið er gert til að fegra umhverfi Blöndubyggðarinnar og væri ekki síst þörf á því eftir að fuglahúsið var opnað á Einarsnesinu. Blöndubyggðin er öll ein hola og drullusvað í vætutíð og allt um kring er svo hvönnin, njólinn og illgresið. Á fallegum sumarkvöldum er fátt yndislegra en að ganga meðfram Blöndu. Bakkastígurinn utan ár er falleg gönguleið og það gæti Blöndubyggðin líka verið.  Svo finnst mér að verði að setja upp  skilti á götunni við Einarsnesið  sem vísar á fuglahúsið því ókunnugir gætu haldið að þetta væri orlofshús, eða eitt af smáhýsum Jónasar þó svo að Blönduóssfáninn blakti  á stöng við húsið.  

Við Blönduósingar getum verið ánægð með Yndisgarðinn okkar og við ættum að vera stolt af því að hafa verið valin í þetta  tilraunaverkefni. Samkvæmt upplýsingum á netinu var  plantað þarna fyrst árið 2009, en það er skógrækt ríkisins sem á veg og vanda af þessari tilraunastarfssemi, sem fer fram á sex stöðum á landinu og er tilgangurinn að vinna að uppbyggingu klónasafna sem hafa þríþætt hlutverk, að varðveita úrvar íslenskra garð- og landslagsplantna til rannsókna og frekari nota, að rannsaka harðgerði þessara plantna og til að vera sýningarreitir fyrir fagfólk og almenning. Við val á stöðum var m.a. tekið mið af veðurfarsskilyrðum.

Í þennan reit okkar hér á Blönduósi var plantað 78 yrkjum í flestum tilfellum þremur plöntum af hverri gerð. Það er ekki annað að sjá en flestar þessar plöntur spjari sig vel hér á Blönduósi. Rósarunnar standa þarna í blóma og þarna má sjá góðan vöxt í mörgum tegundum. Við trjáreitina eru greinargóðar upplýsingar um hvað er í beðunum tíu sem þarna eru og er upplagt fyrir þá sem vilja bæta við fallegum runnum í garðinn sinn að skoða hvaða tegundir eru að spjara sig í Yndisgarðinum hér á norðurhjara. Ég verð þó  að játa að mér finnst ekki sinnt nógu vel um þetta tilraunaverkefni sem okkur var falið að hugsa um. Þarna er illgresi víða að ná yfirhöndinni eins og svo víða í blóma- og trjábeðum á vegum bæjarins. Þarna var vel að gróðursetningu staðið en ef ekki er hugsað vel um beðin, nær grasið yfirhöndinn eins og þarna sést í sumum beðunum. Ég hvet bæjarbúa til að skoða Yndisgarðinn okkar og njóta haustlitanna sem þar má sjá.

Ég  verð að þakka þeim sem stóðu að Húnavökunni fyrir glæsilega dagskrá. Hún var þeim og okkur öllum til sóma og ég ætla rétt að vona að búið sé að tryggja að systkinin Kristín Ingibjörg og Eysteinn Pétur  sjá um Húnavökuna að ári. Þau vita greinilega hvernig á að gera þetta og „plís“ fáið Pál Óskar aftur.

Kveðja,
Nöldri.

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Glaðheimar
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið