Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:38 0 0°C
Laxárdalsh. 09:38 0 0°C
Vatnsskarð 09:38 0 0°C
Þverárfjall 09:38 0 0°C
Kjalarnes 09:38 0 0°C
Hafnarfjall 09:38 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 19. apríl 2015 - kl. 20:36
Sóknaráætlun “ hvað er að frétta?
Eftir Stefán Haraldsson

Þann 22. júní næstkomandi skulu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa lokið gerð sóknaráætlunar landshlutans fyrir árin 2015-2019 samkvæmt samningi sem var undirritaður 10. febrúar síðastliðinn. Áætlunin mun marka stefnu landshlutans í menningarmálum, nýsköpun, atvinnuþróun, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilegri þróun svæðisins. Landshlutinn setur sér leiðarljós í þessum málaflokkum sem tekur mið af áherslum Vísinda- og tækniráðs Íslands, þingsályktunum um stefnumótandi byggðaáætlun og menningarstefnu auk annarrar stefnumótunar ríkisins eftir því sem við á.

Einn af hornsteinunum í vinnunni við sóknaráætlunina er skipun samráðsvettvangs þar sem tryggð skal sem breiðust aðkoma sveitarstjórna, stofnana, atvinnulífs, menningarlífs, fræðasamfélags og annarra haghafa í landshlutanum. Gæta skal lýðræðis-, búsetu-, aldurs og kynjasjónarmiða við skipunina í samráðsvettvanginn.

SSNV skilgreinir nánar hlutverk og verkefni samráðsvettvangsins, en hann skal samkvæmt samningnum hafa beina aðkomu að gerð sóknaráætlunarinnar og vera upplýstur um framgang hennar með að minnsta kosti árlegri samkomu.

Þegar þetta er skrifað eru um það bil 8 vikur þar til sóknaráætlun landshlutans til næstu fjögurra ára lítur dagsins ljós. Fátt hefur verið opinberað um vinnuna við gerð áætlunarinnar en full ástæða fyrir íbúa að fylgjast með fréttum af þessu máli á heimasíðu SSNV – ef og þegar einhverjar birtast. Sérstaklega er ástæða til þess að hvetja sveitarstjórnarmenn í landshlutanum til þess að undirbúa sig fyrir þátttöku í væntanlegum samráðsvettvangi, til dæmis með því að viðra sínar áherslur á vettvangi sveitarstjórna eða jafnvel opinberlega, og efna til einhvers konar samtals við sjálfa íbúana um þessa mikilvægu stefnumótun.

Á heimasíðu SSNV (ssnv.is) er að finna ýmsar upplýsingar um núgildandi sóknaráætlun frá 2013 og verkefni henni tengd. Samtökunum ber að birta allar framvinduskýrslur verkefna og aðrar „afurðir“ jafnóðum og þær liggja fyrir, en einhver misbrestur er á því. Engin leið virðist vera að átta sig á stöðu verkefnanna frá 2013 þó haldnar hafi verið lærðar ræður við hátíðleg tækifæri um hið aukna gagnsæi og vönduðu stjórnsýsluhætti sem sagðar eru felast í vinnubrögðum við gerð og framkvæmd sóknaráætlana.

Af hálfu stjórnarráðsins er starfandi stýrinet eða stýrihópur sem fram á mitt ár 2013 birti fundargerðir og ýmsar upplýsingar um áætlanirnar. Greinarhöfundi hefur gengið illa að finna eitthvað bitastætt á vef stjórnarráðsins um vinnuna við gerð sóknaráætlunarsamninganna 2015-2019, eða framvindu mála eftir mitt ár 2013 yfirhöfuð.

Gerð sóknaráætlana og framkvæmd verkefna samkvæmt þeim eru mikilvægt mál sem varða alla íbúa og atvinnulíf í landshlutanum – kynnið ykkur hvernig til hefur tekist hingað til og látið í ykkur heyra um æskilegar áherslur í nýrri sóknaráætlun!

Stefán Haraldsson
Blönduósi

 

 

 

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Glaðheimar
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið