Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 23:46 0 0°C
Laxárdalsh. 23:46 0 0°C
Vatnsskarð 23:46 0 0°C
Þverárfjall 23:46 0 0°C
Kjalarnes 23:46 0 0°C
Hafnarfjall 23:46 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 20. nóvember 2015 - kl. 16:28
Aðför að menntun í landinu
Eftir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur

Skorið af námstækifærum
Það verður að segjast að hinar hrikalegu tölur um fækkun nemenda í framhaldsskólum landsins á milli áranna 2014 og 2015 koma ekki á óvart. Þessi óheillaþróun stafar af þeirri ákvörðun menntamálaráðherra á síðasta ári að meina fólki yfir 25 ára aldur að gerast bóknámsnemendur í framhaldsskólanum í sinni heimabyggð. Eins og vænta mátti var þessi ákvörðun menntamálaráðherra andmælt harðlega, bæði af okkur í stjórnarandstöðunni á Alþingi og einnig af skólastjórnendum. Ráðherra hélt þó sínu striki og nú blasa afleiðingar ráðstafana hans við.

Frá því að breytingin gekk í gildi hefur nemendum 25 ára og eldri fækkað um 742 í framhaldsskólum sem starfræktir eru af hinu opinbera. Þar af eru 447 bóknámsnemendur en afgangurinn nemendur í verknámi. Breytingin snertir auðvitað bæði einstaklingana sem hafa verið sviptir námsmöguleikum sínum og rekstur framhaldsskólanna. Í erindum sínum til þingmanna hafa skólastjórnendur lýst þungum áhyggjum sínum vegna hinnar umdeildu ákvörðunar menntamálaráðherra um að loka framhaldsskólunum fyrir fólki yfir 25 ára aldur sem kom til framkvæmda samhliða ákvörðun hans um að stytta nám til stúdentsprófs í þrjú ár. Í sameiningu hafa þessar ráðstafanir orðið til að valda gagngerum breytingum á rekstrarumhverfi framhaldsskólanna en lítið svigrúm gefið til aðlögunar.

Skólar í uppnámi, fólk í vanda
Meðal þess sem skólastjórnendur hafa áhyggjur af er að fækkun nemendaígilda í framhaldsskólum þýði minna námsframboð og einsleitari skóla. Einnig telja þeir óljóst um afdrif þróunarstarfs í skólunum og óttast að samstarf milli skóla um dreif- og fjarnám kunni að vera í hættu. Hið síðarnefnda snertir sérstaklega skólastarf á landsbyggðinni þar sem nemendur í dreif- og fjarnámi hafa verið framhaldsskólunum þar mjög hagstæðir og stutt við námsframboð og betri nýtingu fjármuna.

Framhaldsdeildir sem hafa verið að byggjast upp víða um land gjalda líka fyrir hina gerræðislegu ákvörðun menntamálaráðherra um fækkun nemendaígilda og 25 ára reglunnar. Niðurskurðurinn bítur líka þarna og framhaldsdeildirnar standa frammi fyrir því að þurfa að skera starfsemi sína niður. Skólastjórnendur lenda í þeirri ömurlegu stöðu að þurfa að hafna umsóknum um skólavist og afleiðingar þess fyrir einstaklingana sem fyrir því verða og samfélag þeirra eru hörmulegar. Fólk á ekki annarra kosta völ en að gefa áform sín um nám upp á bátinn eða leita út fyrir sínar heimaslóðir. Þetta er þeim mun nöturlegra þegar haft er í huga að skólarnir sem líða fyrir hið nýja skipulag eru ekki síst þeir sem staðsettir eru á svæðum sem eiga í vök að verjast með tilliti til menntunar- og atvinnumöguleika

Stjórnendur margra framhaldsskóla standa í eilífum barningi við að ná endum saman og bjóða upp á nægilegt námsframboð til að skólarnir sem þeir stýra verði samkeppnishæfir og laði til sín nemendur. Fjárheimildir miðast við þá nemendur sem ljúka námi og rekstur verknámsbrauta er tiltölulega kostnaðarsamur þannig að ekki er unnt að halda þeim úti nema með ákveðnum lágmarksfjölda nemenda. Þessi staða þýðir að huga þarf sérstaklega að því að tryggja minni framhaldsskólunum nægilegt fjármagn á hverju ári til að reka grunndeildir verknáms og tvær bóknámsbrautir að lágmarki. Lágmarksfjárveiting til rekstur framhaldsskóla – gólfið svokallað – verður að miðast við þetta.

Skólinn í samfélaginu og samfélagið í skólanum
Flestum er ljóst hve mikilvægt öflugt starf framhaldsskóla er. Þar er einstaklingunum veittur nauðsynlegur undirbúningur til að takast á við atvinnulífið og þær áskoranir sem fylgja því að búa og starfa í flókinni og tæknivæddri nútímaveröld. Skólastarfið er nauðsynlegur og mikilvægur þáttur í þjóðlífinu og gildir þá einu hvort mat er lagt á þá út frá forsendum þéttbýlis eða dreifbýlis. Framhaldsskólarnir eru einfaldlega meðal mikilvægustu stoða samfélagsins og þegar þær stoðir eru veiktar eða fjarlægðar stendur samfélagið einfaldlega veikara eftir. Mikilvægi góðs aðgengis að menntun ætti að vera flestum ljóst og það getur engum dulist að framhaldsskólarnir eiga ríkan þátt í byggðarþróun og framförum þar sem þeir eru starfræktir. Með ákvörðunum sínum um að skerða starfsemi framhaldsskólanna hefur menntamálaráðherra vegið að hlutverki þeirra og tilverugrundvelli. Afleiðingarnar eru margvíslegar en ljóst er þeirra verður mikið vart á landsbyggðinni þar sem þær koma fram í veikari stöðu byggðanna og fráhvarfi efnaminna fólks frá námi. Ráðstafanir menntamálaráherra hafa þannig breytt stöðu skólanna í samfélaginu og einnig samfélaginu innan vébanda þeirra.

Framhaldsskólarnir á landsbyggðinni hafa gefið fjölda nemenda tækifæri til að ljúka framhaldsskólanámi. Sumir hafa notið þar möguleika á að taka til við nám að nýju eftir námshlé eða hafið nám eftir að vera komið af æskuskeiði. Í mörgum tilvikum hefur fólk síðan getað aflað sér framhaldsmenntunar í fjarnámi og án þess að þurfa að flytja brott af sínum heimaslóðum. Með þessu móti verður samhljómur milli skóla og samfélags þar sem einstaklingarnir mennta sig beinlínis til að takast á við sérhæfð störf í heimabyggð, mennta sig svo að segja inn í nærsamfélagið. Þessu er nú öllu stefnt í uppnám.

Mennt er ekki munaður
Það er engan veginn boðlegur kostur að rýra starfsgrundvöll framhaldsskólanna eins og gert hefur verið og takmarka aðgengi að þeim. Fólk ætti ekki að þurfa að sæta því að verða að flytjast búferlum til að eiga kost á námi á framhaldsskólastigi og vera jafnvel gert að stunda það í einkaskólum með tilheyrandi kostnaði. Samfélag okkar kallar eftir menntuðu fólki og ekki síst fólki með haldgóða iðn- og tæknimenntun. Þessu kalli verður að svara með öflugum verknámsbrautum á framhaldsskólastigi um allt land.

Það verður að koma í veg fyrir að stjórnvöld með menntamálaráðherra í broddi fylkingar eyðileggi metnaðarfulla uppbyggingu skólastarfs í framhaldsskólum landsins. Honum má ekki haldast uppi að ráðast þannig gegn hagsmunum landsbyggðarinnar. Mennt er nauðsyn, ekki munaður, og þegar gerðar eru ráðstafanir sem veikja eða jafnvel buga skólastarf á landsbyggðinni og skerða tækifæri efnaminna fólks til að afla sér menntunar er vægast sagt farið að syrta í álinn með stjórnarhætti í landinu.

Niðurrifsstefna menntamálaráðherra má ekki verða ofan á. Hún verðskuldar að bíða skipbrot og það sem fyrst. Í stað hennar ætti að koma uppbyggingarstefna sem styrkir framhaldsskólastarf hvarvetna í landinu en ekki síst á landsbyggðinni og eflir símenntunarstöðvarnar sem víða búa nú við þröngan kost.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður Vinstri grænna í NV-kjördæmi.

Höf. rzg
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
Glaðheimar
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið