Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:41 0 0°C
Laxárdalsh. 20:41 0 0°C
Vatnsskarð 20:41 0 0°C
Þverárfjall 20:41 0 0°C
Kjalarnes 20:41 0 0°C
Hafnarfjall 20:41 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 19. ágúst 2016 - kl. 20:54
Framfarir
Eftir Harald Benediktsson

Byggðamálið stóra, úrbætur í fjarskiptum, er komið á gott skrið og engin ástæða til annars en fagna góðum áföngum sem nú vinnast á hverjum degi.

Það eru miklar framfarir sem fylgja í kjölfar aukinnar útbreiðslu og aðgangs að ljósleiðara.  Breyting á aðstæðum fólks með bættum fjarskiptum er eðlilega mismikil, allt eftir því hvernig fólk nýtir fjarskiptatæknina. En veruleikinn er að margir í sveitum búa við vonlaust fjarskiptasamband. Brýn þörf fyrir afkastamiklar og traustar nettengingar er hluti af okkar daglega veruleika.

Fátt bendir til annars en að mikilvægi slíkra tenginga aukist og kröfurnar verða stöðugt meiri. Nettenging er hluti af því að halda heimili ,reka fyrirtæki, stunda nám og afþreyingu. En fyrst og fremst er góð nettenging öflugasta verkfærið sem við höfum til að rjúfa einangrun og veita okkur frelsi til að velja búsetu óháð staðsetningu. Þannig verður heimurinn ætíð við hendina.

Ríkisstjórnin boðaði í stefnuyfirlýsingu sinni átak í útbreiðslu ljósleiðara. Verkið er komið á fullt skrið. Á þessu ári verða byggðar um 1.000 tengingar af um 4.000 tengingum sem landsátakið Ísland ljóstengt nær til. Þessar tölur segja ekki alla söguna því sagan er svo miklu magnaðri. Við vinnum að útbreiðslu ljósleiðara á um 70% alls láglendis í byggð í Ísland ljóstengt. Það kerfi verður jafnframt bakstykki þess að hægt verður að byggja öflug farnetkerfi.

Á Norðurlandi vestra eru nú í gangi gríðarmiklar framkvæmdir í lagningu ljósleiðara sem munu leiða af sér framfarir fyrir byggðina þar. Það er mikilvægt að á því landsvæði hafi tekist með dugmiklum krafti sveitarstjórna og stuðningi Ísland ljóstengt að ná stórum áföngum í ár. Húnaþing vestra sem stendur nú í miklu innviðaátaki með lagningu hitaveitu, ljósleiðara og 3 fasa rafmagns. Húnavatnshreppur sem hlaut verulegt framlag til að byggja heilstætt ljósleiðarkerfi. Skagabyggð sem er að ljúka stórmerkilegu innviðaátaki með lagningu ljósleiðara og lokahnykkurinn í sumar kemur reyndar til með teygja sig í næsta sveitafélag samhliða lagningu rafstrengs. Blönduósbær byggir ljósleiðarakerfi í öllu sínu dreifbýli. Sveitafélagið Skagafjörður nær jafnframt merkum áfanga í lagningu ljósleiðara.

Ekki má gleyma þeim sveitafélögum sem áður hafa byggt ljósleiðarakerfi og fengu lítinn eða engan hljómgrunn fyrir því verkefni hjá stjórnvöldum fyrr á árum.

Hvað þýðir svo allt þetta í raun og veru? Stutta svarið er að við getum ekkert fullyrt á þessum tímapunkti, svo tæmandi sé. Mín trú er að afleiðingarnar getum við ekki séð fyrir því möguleikarnir spretta fram á hverjum degi þegar að íbúarnir virkja sínar tengingar og átta sig á tækifærunum.

Ég ætla að leyfa mér hér að vitna í tvenn ummæli fólks sem býr í þessum sveitafélögum sem hér hafa verið nefnd. Þau ummæli eru lýsandi fyrir þann hug sem fólkið sjálft ber til nýrra tíma. „Ég er að fá bæði hitaveitu og ljósleiðara sem er frábært. Viðurkenni fúslega að mest hlakka ég til þeirra breytinga sem koma með ljósleiðaranum.“ „Við buðum dóttur okkar og tengdasyni að taka við búinu í fyrra. Þau treystu sér ekki til þess þó áhugann vantaði ekki vegna þess að þá gæti tengdasonur okkar ekki sinnt vinnu vegna þess að almennilega nettengingu vantar. Eftir að varð ljóst að ljósleiðari kæmi hér breyttist hugur þeirra og nú afráðið að þau taka við búinu í haust og setjast hér að. Það hefði aldrei gerst nema vegna þess að hér kemur ljósleiðari.“

Það er mikilvægt að fylgja fast eftir þessu mesta framfara- og byggðamálisamtímans á næstu árum. Þó allir vilji úrbætur strax í dag þá skiptir mestu máli að við erum loksins farin að láta verkin tala.

Haraldur Benediktsson
Þingmaður NV kjördæmis og formaður Fjarskiptasjóðs.

Höf. rzg
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
Glaðheimar
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið