Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 4. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:10 0 0°C
Laxárdalsh. 17:10 0 0°C
Vatnsskarð 17:10 0 0°C
Þverárfjall 17:10 0 0°C
Kjalarnes 17:10 0 0°C
Hafnarfjall 17:10 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Fréttir | 13. nóvember 2020 - kl. 15:46
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður á sunnudaginn, 15. nóvember. Tilgangurinn er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun.

Að þessu sinni verður minningardagurinn sniðinn að sérstökum aðstæðum í samfélaginu. Í stað rótgróinnar minningarstundar við þyrlupallinn við Landspítalann verður árvekniátak í samfélaginu um umferðaröryggi dagana 13.-15. nóvember.

Minningarviðburðir víða um land

Minningarviðburðir verða haldnir um land allt og fjallað verður um mikilvæg málefni tengd umferðaröryggi í fjölmiðlum, myndböndum og umræðum á samfélagsmiðlum.

Einkennislag dagsins verður lag KK, When I think of angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum á minningardaginn sjálfan klukkan 14:00.

Að kvöldi minningardagsins klukkan 19:00 munu félagar í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og fleiri viðbragðsaðilar standa fyrir táknrænum minningarathöfnum um allt land í beinni vefútsendingu til að minnast fórnarlamba umferðarslysa. Kveikt verður á kertum hringinn í kringum landið af þessu tilefni.

Rík hefð er fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.

Alþjóðlegur minningardagur

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 4.000 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum.

Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1585 manns látist í umferðinni á Íslandi (fram að 1. nóvember 2020). Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.

Segja má að allt samfélagið deili með sér alvarlegum afleiðingum umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir slysin og megi þessi dagur efla vitund okkar fyrir því og ábyrgð.

Vefur minningardagsins
www.samgongustofa.is/minningardagur

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið