Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Nýsköpunarviðburðurinn Hacking Norðurland fer fram dagana 15. - 18. apríl og er ætlað að virkja skapandi og lausnamiðaða hugsun og styðja við nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra á svæðinu. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Hacking Hekla, Eims, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Nýsköpunar í Norðri og Nordic Food in Tourism.
Unnið verður með sjálfbæra nýtingu auðlinda svæðisins með tilliti til matar, vatns og orku. Markmiðið er einnig að draga fram í sviðsljósið öflugt frumkvöðlastarf á svæðinu og tengja saman frumkvöðlasenurnar í dreifbýli og þéttbýli á Íslandi.
Í tilkynningu segir að Norðurland sé stórt svæði og til að tryggja að allir áhugasamir geti tekið þátt, hvar sem þeir eru staðsettir fari lausnamótið fram sem “tvinn-viðburður”. Lausnamótið hefst 15. apríl með opnunarviðburði og vefstofu þar sem rætt verður um þau tækifæri sem felast í auðlindum svæðisins. Föstudaginn 16. apríl hefst svo lausnamótið sjálft sem stendur í 48 klukkustundir og fer að stærstum hluta til fram í gegnum Hugmyndaþorp, sem er stafrænn vettvangur til samsköpunar, þróaður af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla.
Samstarfsteymi Hacking Norðurland mun ferðast á milli frumkvöðlasetra á svæðinu meðan á lausnamótinu stendur og geta þátttakendur nærri þeim setrum nýtt sér möguleikann á því að vinna að hugmyndum sínum þar. Útkoman úr lausnamótinu getur verið stafræn lausn, vara, þjónusta, verkefni, hugbúnaður, vélbúnaður eða markaðsherferð. Hacking Norðurland lýkur sunnudaginn 18. apríl með lokaviðburði þar sem dómnefnd velur þrjú bestu verkefnin sem hljóta peningaverðlaun auk aukavinninga.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |