Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 4. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:52 0 0°C
Laxárdalsh. 20:52 0 0°C
Vatnsskarð 20:52 0 0°C
Þverárfjall 20:52 0 0°C
Kjalarnes 20:52 0 0°C
Hafnarfjall 20:52 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir. Mynd: Aðsend.
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir. Mynd: Aðsend.
Fréttir | 18. mars 2021 - kl. 09:30
Katrín Sif vill leiða Pírata í NV-kjördæmi

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi formaður kjaranefndar ljósmæðrafélags Íslands, vill leiða Pírata í Norðvesturkjördæmi. „Ég býð mig fram í Norðvesturkjördæmi vegna þess að ég tel að reynsla mín og kraftar muni nýtast því kjördæmi einna best á næsta kjörtímabili. Ég á ættir að rekja vestur og hef starfað þar sem ljósmóðir með hléum undanfarin sjö ár bæði á Patreksfirði og á Ísafirði,“ segir Katrín Sif í tilkynningu.

Hún segist einni hafa unnið bróðurpart starfsævinnar utan höfuðborgarsvæðisins svo sem á Heilbrigðisstofnunum Vestfjarða, Suðurlands og Suðurnesja. „Ég sótti háskólanám í Háskólann á Akureyri. Ég er, þrátt fyrir að vera fædd á malbikinu, í hjarta mínu algjör dreifbýlisstúlka. Ég var sem barn í sveit á sumrin í Skagafirði og þar á ég ættingja.“

Katrín Sif er fjörutíu og fimm ára hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, með diplómu í opinberri stjórnsýslu. Hún er gift Aðalsteini Ingólfssyni og samtals eiga þau átta börn. Sem stendur starfar hún sem ljósmóðir í mæðravernd og sinnir heimafæðingaþjónustu.

Katrín Sif var formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands og sat í stjórn félagsins á árunum 2017-2019. Katrín leiddi á þeim tíma mjög harða kjarabaráttu þar sem áhersla var lögð á að allt skyldi vera uppi á borðum, á gagnsætt ferli með sanngirni og réttlæti að leiðarljósi. Hún var einnig í samstarfsnefnd BHM og Ljósmæðrafélags Íslands um endurnýjun stofnanasamninga á heilbrigðisstofnunum frá ársbyrjun 2017-2020.

Félagsmál hafa verið Katrínu Sif hugleikin og hefur hún verið ötul í baráttu fyrir lögleiðingu nýrrar stjórnarskrár, og er þátttakandi í Samtökum kvenna um nýja stjórnarskrá sem og í Stjórnarskráfélaginu.

Í tilkynningu segir Katrín Sif:

„Ég veit hversu mikilvægt það er fyrir íbúa kjördæmisins að fá öflugan talsmann fyrir traustu aðgengi að heilbrigðis- og félagsþjónustu á landsbyggðinni til liðs við sig. Ég hef komið víða að í heilbrigðiskerfinu, bæði sem þjónustuveitandi, þjónustuþegi og aðstandandi. Ég hef staðið ölduna í því kerfi í gegnum súrt og sætt, hrun og faraldur og þannig séð, heyrt og lært. Allt er þetta dýrmæt reynsla sem ég er tilbúin að nýta mér á vettvangi Alþingis til að vinna að góðu og skilvirku heilbrigðiskerfi.

Píratar á Íslandi eru ungt afl sem hefur tekið út mikinn þroska og vöxt á stuttum tíma. Þetta er afl sem er í stöðugri þróun og getur þar af leiðandi boðið upp á mikilvæga aðlögunarhæfni og lestur í nútímaþarfir samfélagsins. Píratar byggja á góðum þverskurði samfélagsins og grunnstefna þeirra stendur vörð um réttindi allra hópa.

Áhersla Pírata á að efla og vernda réttindi jaðarsettra hópa í samfélaginu höfðar sérstaklega vel til mín því ég brenn fyrir samfélagi þar sem allir hafa tækifæri til að sitja við sama borð. Ég trúi því að ef grunnurinn er traustur, þ.e. ef við hlúum vel að börnunum okkar og veitum þeim öryggi og fullnægjandi vaxtar- og þroskaskilyrði, andleg, félagsleg og líkamleg, þá komum við í veg fyrir ansi víðtæka þjónustuþörf í heilbrigðiskerfinu þegar fram í sækir. Ég tel að ég sé vel til þess fallin að geta verið þessum málaflokkum góður málsvari, ég hef til þess traustan grunn, reynslu, þekkingu og þroska.“

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið