Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:12 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:12 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:12 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:12 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:12 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:12 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Dómsmálaráðherra hefur skipað Birgi Jónasson í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra frá 19. júlí. Birgir lauk meistaraprófi í lögfræði árið 2010 og MBA gráðu árið 2017. Þá lauk hann prófi frá Lögregluskóla ríkisins árið 2000 og hefur auk þess sótt sér ýmiss konar viðbótarmenntun.
Á árunum 1994-2002 starfaði hann við almenn löggæslustörf. Hann var lögreglufulltrúi hjá ríkislögreglustjóra frá 2002-2007. Þá starfaði hann sem laganemi og síðar lögfræðingur hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu frá 2007-2009. Á árunum 2009-2016 starfaði hann hjá embætti sérstaks saksóknara, fyrst sem sérfræðingur og svo sem ákærandi. Þá var hann einnig aðstoðarmaður saksóknara Alþingis í landsdómsmálinu á árunum 2011-2012. Á árunum 2016-2018 starfaði Birgir hjá Arion banka á sviði innri endurskoðunar. Frá árinu 2019 hefur hann starfað í greiningardeild ríkislögreglustjóra auk þess að sinna kennslustörfum á háskólastigi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |