Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 4. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:37 0 0°C
Laxárdalsh. 21:37 0 0°C
Vatnsskarð 21:37 0 0°C
Þverárfjall 21:37 0 0°C
Kjalarnes 21:37 0 0°C
Hafnarfjall 21:37 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
N 65 39' 32.04" V 20 16' 55.2"
Pistlar | 02. febrúar 2016 - kl. 22:17
Heildarstefna í húsnæðismálum
Eftir Elsu Láru Arnardóttur

Á sumarþingi 2013 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu í 10 liðum. Um var að ræða aðgerðaáætlun sem fól það m.a. í sér að taka á skuldavanda heimila, auka stöðugleika og gagnsæi á húsnæðislánamarkaði og vinna að framtíðarskipan húsnæðismála, þar á meðal úrbótum á leigumarkaði.

Einn liður tillögunnar fjallaði um að félags- og húsnæðismálaráðherra ætti að skipa verkefnastjórn um framtíðarskipan húsnæðismála. Verkefnastjórnin hafi m.a. það hlutverk að koma með tillögur að nýju húsnæðislánakerfi með það í huga að tryggja virkan leigumarkað og skilvirk félagsleg úrræði fyrir þá sem slíkt þurfa.  Verkefnastjórnin skilaði af sér tillögum árið 2014. Út frá þeirri vinnu komu síðar frumvörp sem nú er unnið að  í velferðarnefnd þingsins.

Um hvað fjalla frumvörpin?
Fyrst má nefna frumvarp um almennar íbúðir fyrir efnaminni leigjendur sem felur í sér að byggja samtals 2300 íbúðir á þessu ári og næstu þremur árum. Í fjárlögum fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir rúmlega 1,5 milljarði í verkefnið. Frumvarp um húsnæðisbætur sem felur í sér stóraukinn stuðning fyrir leigjendur. Þar eru frítekjumörk hækkuð og stuðningur miðast við fjölskyldustærð. Verið er að jafna stuðning milli ólíkra búsetuforma svo einstaklingar og fjölskyldur hafi raunverulegt val um búsetuform. Rúmur milljarður er settur í verkefnið á þessu ári. Jafnframt er það frumvarp um breytingu á lögum um húsnæðissamvinnufélög, þar sem verið er að styrkja þau félög og auka íbúalýðræði. Auk þessa er það frumvarp um breytingu á húsaleigulögum sem felur í sér aukin réttindi leigjenda og leigusala.

Heildarsamhengið mikilvægt
Þegar ofangreind húsnæðisfrumvörp hafa verið afgreidd þá taka verðtryggingarmálin við. Í því samhengi þarf að horfa til vaxtabyrði lána og greiðslubyrði fólks af húsnæðislánum. Festa þarf í sessi hvata til húsnæðissparnaðar, t.d. í formi séreignasparnaðar. Jafnframt þarf að endurskoða þau úrræði sem sett eru fram í greiðslumati. Óhætt er að halda því fram að ríkisstjórn Framsóknar – og Sjálfstæðisflokksins vinni að heilum hug fyrir heimili landsins. Hvort sem um er að ræða þau heimili sem falla undir séreignastefnuna, heimili á leigumarkaði eða þau heimili sem falla undir húsnæðissamvinnufélög. Það er markmið ríkisstjórnarinnar að landsmenn hafi raunverulegt val um búsetuform og því er mikilvægt að allar þessar aðgerðir nái fram að ganga.

Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið