Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:36 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Holóttir þröngir malarvegir í rigningu og haustmyrkri eru stórhættulegir yfirferðar. Þessu kynnist maður vel nú á ferðum um kjördæmið í aðdraganda enn einna kosninganna. Þessir holóttu vegir bera gott vitni um hinn hola hljóm sem hefur verið í loforðum fyrir hverja kosningu á síðustu árum og áratugum. Það skiptir víst litlu máli þótt kosningar sé haldnar árlega, jafnvel oftar. Vegirnir eru áfram holóttir og áfram hljóma hol kosningaloforð.
Tekjurnar týnast í fjárlögum
Þegar ég keyri þessa holóttu vegi verður mér hugsað til skólabarna sem ekið er með tugi kílómetra daglega um þessar illfærur, öryggi barnanna og aðbúnað. Sama á raunar við þegar ekið erum þá vegi kjördæmisins sem teljast í alfaraleið, og eru jafnvel hluti af þjóðvegi 1. Hinn sk. Vesturlandsvegum er mjór, allur í blindhæðum og ber engan veginn þá umferð sem honum ber – sérstaklega ekki eftir miklu aukningu erlendra ferðamanna. 2 + 1 vegur myndi bæta stórlega þar úr.
Það þarf engan sérfræðing til þess að sjá að það þarf stórátak í vegamálum kjördæmisins. Tekjustofnar og fjármunir eru fyrir hendi. Hið opinbera innheimtir ýmsa skatta af vegfarendum í gegnum álögur á eldsneyti, skatta á bifreiðar og svo framvegis. En þessar tekjur virðast týnast í fjárlögum, að minnsta kosti birtast þær ekki sem framlög til samgöngubóta. Það sáum við nú síðast í þeim fjárlögum sem lögð voru fram á Alþingi nú í haust.
Týndar tekjur af Hvalfjarðargöngum
Gott dæmi af týndum tekjustofnum eru Hvalfjarðargöng. Frá því að göngin voru byggð hefur ríkið innheimt 3,2 milljarða í virðisaukaskatt ofan á veggjöldin – en í stað þess að renna til vegarbóta á svæðinu hafa þessir peningar runnið til annarra útgjalda í fjárlögum. Og svo tala menn um ný veggjöld á leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu – þangað sem íbúar kjördæmisins þurfa að sækja ýmsa þjónustu og jafnvel vinnu. Beinar tekjur sem ríkið hefur haft af Hvalfjarðargöngunum gætu svo vel farið í enduruppbyggingu og breikkun á þessum vegi. Þar eru miljarðar króna og ætti að skila áður til nábýlinga ganganna áður en talað er um ný veggjöld á þessari leið.
Héraðs- og sveitavegirnir kalla
Vegleysurnar kalla um um Vatnsnesið, Húnavatnssýslurnar inn til dala, Skagann um Skagafjörð og út á Reykjaströnd eða um Hegranesið, Borgarfjörð, Mýrar, Snæfellsnes, Skógarströnd, Dali, Vestfirði og Strandir. Það dugar lítt að kjörnir fulltrúar bendi á hver á annan um "að ekki hafi fengist stuðningur við þessa eða hina framkvæmdina". Vinur minn, bóndi á Vatnsnesi kallaði mig Vega - Bjarna. Mér þótti það hól. Það er rétt að ég hef farið reglulega um alla þessa vegi kjördæmisins og þekki vel óskir fólksins, íbúanna og finn til með þeim í vegleysunum. Svar mitt er, að ég treysti mér til og mun leggja mig allan fram í að bera fram óskir fólksins úr hinum dreifðu byggðum um bætt vegakerfi og fylgja þeim eftir á Alþingi.
Bjarni Jónsson
Skipar 2. sæti á lista VG í Norðvesturkjördæmi
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |