Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:44 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kvenfélagið Hekla í Skagabyggð var stofnað 28. ágúst 1927 af 14 konum yst í gamla Vindhælishreppi. Það hefur í 90 ár starfað að ýmsum framfaramálum og lagt mörgum góðum málum lið. Félagið stóð m.a. fyrir kaupum á vefstólum, prjónavél og spunavél á fyrstu árum félagsins. Þá stóðu kvenfélagskonur fyrir merku átaki í vegagerð á Skaga á 4. áratug síðustu aldar og var því átaki reistur minnisvarði sem vígður var 2. júlí 1989. Líkt og önnur kvenfélög landsins voru helstu mál kvenfélagskvenna þá og eru enn, að styðja við þá sem minna mega sín, stuðla að ýmsum framfaramálum er snerta heimili og íbúa svæðisins sem og fjölbreyttar fjáraflanir og samkomur. Má þar nefna réttarkaffisölu, basara, jólaböll og jólahlaðborð.
Í ársbyrjun 2018 eru kvenfélagskonur 12 talsins. Félagsfundir eru haldnir nokkrum sinnum á ári. Starfsstöð kvenfélagsins er í félagsheimilinu Skagabúð. Helstu viðburðir í starfsemi félagsins eru hátíðarkaffi á þjóðhátíðardaginn, réttarkaffisala við Fossárrétt, jólabasar, jólahlaðborð og jólaball. Þá sjá félagskonur um ýmsa veitingasölu, s.s. erfidrykkjur, fundakaffi og matarveislur.
Á árinu 2017 var ákveðið að gefa út sögu félagsins í tilefni 90 ára afmælis þess og kom sú bók út fyrir jólin 2017. Bókin er skrifuð af Lárusi Ægi Guðmundssyni á Skagaströnd. Bókin kostar 3.000 kr.
Hægt er að nálgast bókina hjá eftirfarandi kvenfélagskonum:
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |