Stökuspjall: Fjóla og músareyra  •   Undirbúningur að uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð í Miðfirði í fullum gangi  •   Samningur um samvinnurými á Skagaströnd  •   Birna Ágústsdóttir sett tímabundið sem sýslumaður á Vesturlandi  •   Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar  •   Jóhann Örn ráðinn tengslafulltrúi á fjölskyldusviði Húnaþings vestra  •   Íbúafundur í Skagabyggð á sunnudaginn  •   Að fá að hvíla í undri bænarinnar  •  
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:40 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:40 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:40 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:40 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:40 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:40 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
Pistlar | 02. maí 2024 - kl. 15:36
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Áttræður með ellibrag / elds við sterkan hita. Ljái tvo ég lamdi í dag / löðrandi í svita. Fallega Guðný fötin sker / fagrir saumar prýða / en stakkinn handa sjálfri sér / sú kann ekki að sníða. Sigurður í Jörva orti um Guðnýju ljósmóður sem var líka ágætur klæðskeri, en þá fyrri um sig sjálfan. Sigurður Helgason er ekki öðrum líkur, neyðarlegur í vísum sín, hefur kannski ekki verið þjáll í sambúð, en þessa vísu orti hann, þegar hann flutti frá konu sinni á Fitjum:
|
Fréttir | 02. maí 2024 - kl. 11:28
Vonir standa til að á þessu ári hefjist framkvæmdir við uppsetningu á nýstárlegri gróðurstöð í Miðfirði í Húnaþingi vestra til framleiðslu á skógarplöntum. Einkahlutafélagið Skógarplöntur og verkefnastjóri frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Magnús Barðdal, vinna að verkefninu. Í tengslum við það fór hópurinn í ferð til Svíþjóðar og Hollands á dögunum til að kynna sér aðrar sambærilegar gróðurstöðvar og skoða búnað frá framleiðendum.
|
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 16:41
Sveitarfélagið Skagaströnd og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undirritað samning vegna styrks, að fjárhæð 15 milljónir, til að skapa samvinnurými á Skagaströnd. Markmið verkefnisins er að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess. Húsið sem um ræðir var áður fiskvinnsluhús, síðast rækjuvinnsla.
|
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 15:13
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi frá 1. júní nk. til og með 31. maí 2025. Tilefnið er beiðni Ỏlafs Kristófers Ỏlafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti. Á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins kemur fram að nú standi yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir 1. júní 2024.
|
Fréttir | 30. apríl 2024 - kl. 08:19
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra auglýsir fimm stöður til umsóknar. Um er að ræða stöðu löglærðs fulltrúa á Sauðárkróki, innheimtufulltrúi á Ísafirði, tvær stöður innheimtufulltrúa á Blönduósi og starf verkefnastjóra milliríkjainnheimtu á Blönduósi.
|
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 15:13
Jóhann Örn Finnsson hefur verið ráðinn í nýtt starf tengslafulltrúa á fjölskyldusviði Húnaþings vestra sem auglýst var á dögunum. Tengslafulltrúi mun starfa með ungmennum í sveitarfélaginu í samræmi við áherslur farsældarlaga og er tengiliður þeirra við stjórnkerfi og stofnanir. Hann mun leitast við að aðstoða ungmenni við að finna ástríðu sína og vinna að henni með fjölbreyttu tómstundastarfi og stuðningi, eins og segir á vef Húnaþings vestra.
|
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 15:07
Skagabyggð heldur íbúafund í Skagabúð sunnudaginn 5. maí næstkomandi klukkan 14. Á dagskrá fundarins eru sameiningarmál og önnur mál. Farið verður yfir stöðu sameiningarviðræðna við Húnabyggð og annað það sem liggur á íbúum að ræða.
|
Pistlar | 29. apríl 2024 - kl. 14:31
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Á ævigöngunni hvort sem það er nú í gleði eða sorg eða bara þegar við mögulega kunnum að sigla einhvern lygnan sjó um stutta stund, þá er það mín reynsla að ekkert sé dýrmætara og betra en að fá að hvíla í mætti og undri andans heilaga og góða og bænarinnar. Því þótt yfir mig fenni aða ég verði undir fargi vonbrigða og volæðis, þá bið ég þess að kærleikur þinn, góði Jesús, mér bjargi nú og um alla framtíð, líkt og fyrri daginn.
|
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 11:45
Lögreglan á Norðurlandi vestra auglýsir eftir fólki til að taka þátt í hópslysaæfingu og leika fórnarlamb eða jafnvel óttasleginn ættingja, eins og segir á facebooksíðu hennar. Þar kemur fram að nýverið hafi verið haldin kynning fyrir unglinga í Húnaskóla um hlutverk og mögulega aðkomu að æfingunni. Æfingin verður haldin 11. maí næstkomandi og hægt er að senda tölvupóst á netfangið nordurland.vestra@logreglan.is og tilkynna þátttöku.
|
Pistlar | 29. apríl 2024 - kl. 09:25
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Nú birtist Þröstur og við sem lesið höfum sr. Árna og Þórberg erum æ síðan ginnkeypt fyrir góðum ævisögum, síðast varð ég upptekinn af ævisögu sr. Sigurjóns úr Arnarfirðinum, eftir sumarferð Húnvetninga vestur 2023, Undir hamrastáli heitir hún sú góða bók eða eitthvað í þá áttina. En nú er komin ný bók, nýsamin af Þresti, ekki bara ævisaga, líka landssaga, þjóðarsaga og spurningin vaknar, er hún heiðarleg? Jú, það sést á þættinum um soninn Eilíf Örn og fleiri, málfarið er skínandi gott og víða frumlegt
|
Fréttir | 29. apríl 2024 - kl. 09:13
Verkalýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur í Húnabyggð 1. maí, sem er miðvikudagur að þessu sinni, undir yfirskriftinni Sterk hreyfing - sterkt samfélag. Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst dagskráin klukkan 15. Boðið verður upp á fábæra tónlist og söng. Ræðumaður dagsins er Sigurey A. Ỏlafsdóttir, formaður Stéttarfélags Samstöðu. Afþreying fyrir börnin. Kvenfélag Svínavatnshrepps sér um glæsilegar veitingar.
|
Fréttir | 28. apríl 2024 - kl. 21:53
Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að framundan eru forsetakosningar. Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir verður á ferð og flugi um Norðurland í vikunni og býður heimamönnum til opinna funda og samtals um embætti forseta Íslands. Tveir fundir verða í Húnavatnssýslum, í Víðigerði og á Blönduósi.
|
Fréttir | 27. apríl 2024 - kl. 10:03
Húnaþing vestra og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa undirritað samning um 10,5 milljón króna styrk til uppsetningar samfélagsmiðstöðvar og tæknimiðstöðvar í anda FabLab smiðju í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Verkefnið, sem nefnist Hjartað í Húnaþingi vestra, snýst um að koma upp nýsköpunar-, viðgerða- og þróunaraðstöðu fyrir íbúa á svæðinu, sem og aðstöðu fyrir félagsstarf.
|
Fréttir | 27. apríl 2024 - kl. 09:43
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, úthlutaði í gær úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Alls bárust 125 umsóknir um styrki, fyrir rúmlega 2,9 milljarða króna, til verkefna að heildarfjárhæð rúmlega 4 milljarða. Að þessu sinni hljóta 29 verkefni styrk úr sjóðnum, samtals að fjárhæð 538,7 milljónir króna, og dreifast þau um land allt. Tvö verkefni í Austur-Húnavatnssýslu fengu styrk.
|
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |