Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:14 0 0°C
Laxárdalsh. 04:14 0 0°C
Vatnsskarð 04:14 0 0°C
Þverárfjall 04:14 0 0°C
Kjalarnes 04:14 0 0°C
Hafnarfjall 04:14 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 30. júní 2016 - kl. 14:52
Velkomin heim að Hólum
Eftir Bjarna Jónsson

Með stolti og gleði bjóða Skagfirðingar Landsmót hestamanna 2016 velkomið heim að Hólum. Skagafjarðarsýsla keypti Hóla 1881 og stofnaði þar bændaskóla á hinu forna biskups- og menntasetri Norðlendinga um aldir. Fyrir mig sjálfan er þessi stóratburður, Landsmót hestamanna heima á Hólum einkar ánægjulegur. Ég minnist þess þegar ég fluttist með foreldrum mínum og fjölskyldu til Hóla síðla sumars 1981 og bjuggum við þar öll næstu 20 árin en ég lengur. Faðir minn, Jón Bjarnason síðar þingmaður og ráðherra var þá nýráðinn skólastjóri Hólaskóla,  en reglubundið skólahald hafði legið þar niðri í tvö ár. Til stóð að leggja niður allt skólahald og loka Hólastað sem menntasetri. Þeirri ákvörðun var sem betur fer breytt og endurreisn Hóla ákveðin. Við vorum þá orðin fjögur systkinin í fjölskyldunni og mér fannst við vera að fara úti í nokkra óvissu. Sárt var að yfirgefa kindurnar, hestana mína og hið fjölbreytta sveitalíf sem ég hafði alist upp við í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi. Ég fékk þó að taka skjóttu hryssurnar mínar tvær með mér heim að Hólum. Þær voru hörkuviljugar og þóttu nokkuð villtar þegar þær komu saman við hin ræktuðu ríkishross á Hólum. En á Hólum hafði þá verið rekið hrossaræktarbú í meira en 20 ár. Þegar ég hugsa til baka til ársins 1981 að við komum að Hólum. Þá var varla  nokkuð almennilegt hús íbúðarhæft og borið  saman við staðinn í dag er breytingin ótrúleg ef ekki kraftaverk.

Endurreisn Hóla

Sérstaða Hólaskóla var þá þegar mörkuð sem miðstöð hrossaræktar og reiðkennslu í landinu og reyndar um gjörvallan heim íslenska hestsins. Og byggingar risu ein af annarri, hesthús, reiðskemmur og reiðvellir, íbúðarhús og kennsluhúsnæði. Skólahús og aðrar eldri byggingar voru  gerðar upp. Námið efldist og þróaðist með alþjóðlegum blæ og hróður þess barst víða um heim.  Innan fárra ára voru nemendur erlendis frá jafnvel fleiri en þeir íslensku. Fyrir okkur sem ólumst upp á Hólum á þessum umbrotatímum var þetta ævintýri líkast. Og þó svo faðir minn sæist lítið nema um blánóttina og móðir mín oft kölluð í mötuneytið, gestamóttöku eða búa um næturgesti heima, var staðurinn og íbúarnir eins og ein stór fjölskylda. Yngstu systkini mín tvö fæddust á Hólum, og svo síðar dóttir mín. Af öllu því góða fólki, stóru fjölskyldu, nemenda og starfsfólks verð ég að nefna einn án þess að halla á aðra. Ég er ekkert viss um að við værum nú að halda landsmót á Hólum ef traustri bústjórn Grétars Geirssonar hefði ekki notið við öll fyrstu árin okkar á Hólum.

Næturgestir, farkennarar þurftu yfirleitt að gista í húsi okkar því þröngt var um pláss og aðsókn nemenda mikil og umfram það sem hægt var að taka inn. Og Hólastaður óx og dafnaði, stolt Skagfirðinga. Vígslubiskup Hílastiftis og embættið fluttist heim að Hólum og fékk víðtækt hlutverk  í kirkjumálum Hólastiftis. Námið færðist á Háskólastig, Hólaskóli- Háskólinn á Hólum miðstöð rannsókna og í kennslu i öllu því er varðar íslenska hestinn. Skólinn fékk til liðs við sig færustu reiðkennara og samstarf við allar greinar hestamennskunnar var ætíð mjög náið. Vindheimamelar í Skagafirði hafa um langt árabil verið landsmóts og samkomustaður hestmanna í Skagafirði. Er mér sérstaklega minnisstætt landsmótið á Vindheimamelum 1982 og að verða vitni að því þegar glæsihryssan okkar Þrá, þá 4 vetra sló svo eftirminnilega í gegn. Þrá og afkomendur hennar hafa síðan gert garðinn frægan um allan heim íslenska hestsins. 

Landsmót heima á Hólum

Hinn mikli kraftur og fórnfýsi hestamanna í Skagafirði skóp Vindheimamelum sérstakan sess meðal vina íslenska hestsins um langt árabil. Okkur verður hugsað með þakklæti til þeirra allra. Eftir að Hólar efldust sem miðstöð íslenska hestsins kom ítrekað til umræðu að byggja Hóla upp sem landsmótsstað. Slík hugmynd þurfti samt að þróast og er nú orðin að veruleika í Landsmóti hestamanna á Hólum 2016. Sem sveitarstjórnarmaður í Skagafirði um árabil hefur verið ánægjulegt að fylgjast með aðdraganda og undirbúningi þessa landsmóts.

Góðir landsmótsgestir! Hestamennskan, reiðmennskan, ræktun íslenska hestsins hefur tekið gríðarlegum framförum og breyst í hreinar listgreinar og háþróaðar íþróttir. Glæsileiki og fegurð hrossanna er hrífandi og meiri en orð fá lýst. Þessi stökkbreyting sem gerst hefur hér á Hólum síðan endurreisn staðarins hófst 1981, er hreint ótrúleg. Hólar í Hjaltadal  er stolt okkar Skagfirðinga, Norðlendinga og landsmanna allra. Megi landsmótsgestir njóta eftirminnilegra og góðra stunda. Verið velkomin heim að Hólum.

Bjarni Jónsson

Höf. rzg
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:39
Fimm textíllistamenn í Kvennaskólanum á Blönduósi halda sýningu í skólanum í dag klukkan 17-19 og nefnist hún Warped. Listamennirnir eru Siri Petterson og Klara Gardtman frá Svíþjóð, Brianna Dunn frá Kanada og Linda Lemire og Kristen L´Esperance frá Bandaríkjunum. Allir eru velkomnir.
Glaðheimar
Fréttir | 26. apríl 2024 - kl. 10:32
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Íbúar sveitarfélaga eru hvattir til þess að taka þátt í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni, eða á öðrum vel völdum svæðum. Í Húnaþingi vestra verður plokkað alla helgina og ætla krakkar í leik- og grunnskólanum að ríða á vaðið og byrja að plokka í dag. Hægt verður að nálgast plastpoka í sundlauginni á opnunartíma og þar verður einnig hægt að losa sig við ruslið í ruslakör.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 22:20
Síðdegis á laugardaginn er upplagt að kíkja í heimsókn til listamannanna í Nesi listamiðstöð á Skagaströnd. Hægt er að skoða og spjalla um verk þeirra og njóta fjölbreyttrar og skapandi tjáningar, þar á meðal teikninga, málverka, bókmennta og kvikmynda. Allir eru velkomnir á laugardaginn 27. apríl klukkan 16-18 að Fjörubraut 8.
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Ingimar Emili Skaftason. Ljósm: Lisa Halterlein
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 21:19
Eins og flestir vita þá lenti Ingimar Emil Skaftason í alvarlegu slysi í Þýskalandi þann 28. mars sl. Hann er byrjaður í endurhæfingu en þurfti að fara í þriðju aðgerðina í morgun 25. apríl. Þessu fylgir mikill kostnaður og því hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir hann.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið