Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:39 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:39 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:39 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:39 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:39 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:39 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Blönduósbæjar. Kristín starfar nú sem launafulltrúi á skrifstofu Blönduósbæjar og mun sinna því starfi þar til nýr launafulltrúi hefur verið ráðinn. Hún mun formlega taka við hinu nýja starfi um næstu áramót, að því er segir í tilkynningu á vef bæjarins.
Blönduósbær ákvað í sumar að auglýsa stöðuna og leggja niður frá sama tíma starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar, sem mun falla undir nýja starfið, ásamt þróunarvinnu með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins og einnig áform um að þróað verði á næstu árum nýtt Frístundaheimili Blönduósbæjar.
Þá mun starfið einnig verða tengiliður við Embætti landlæknis og umsjónaraðili með verkefninu „Heilsueflandi samfélag“ sem sótt hefur verið um. Ennfremur mun starfið verða tengiliður sveitarfélagsins við öll félög og samtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu sem og alla menningartengda viðburði sem sveitarfélagið kemur að.
Í tilkynningunni segir að Kristín Ingibjörg hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á öllum þeim þáttum sem starfið nái til og þekki vel til allra innviða í sveitarfélaginu og á starfssvæðinu. Þá hafi hún einnig menntun og reynslu sem nýtist í þessu nýja og fjölbreytta starfi sem miklar væntingar séu bundnar við.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |