Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í síðustu kjarasamningum var samið um Félagsmannasjóð. Þetta ákvæði nær til félagsmanna Stéttarfélagsins Samstöðu sem starfa hjá sveitarfélögum í Húnavatnssýslum.
Sveitarfélögin greiða mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna Samstöðu.
Við þetta öðlast allir starfsmenn rétt á eingreiðslu sem tekur mið af launum þeirra og starfstíma frá 1. febrúar til 31. desember ár hvert. Greiðslan fyrir árið 2020 á að berast starfsmönnum þann 1. febrúar næstkomandi.
Forsendan þess að hægt verði að greiða úr sjóðnum er að Stéttarfélagið Samstaða hafi kennitölu, bankaupplýsingar og netföng félagsmanna og símanúmer.
Þess vegna er afar mikilvægt að starfsmenn sveitarfélaga sendi þessar upplýsingar sem fyrst á netfangið samstada@samstada.is svo hægt verði að greiða félagsmönnum. Þá er einnig hægt að koma við á skrifstofu Samstöðu eða hringja í síma 452 4932 og ganga frá þessum málum þar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |